Forsíða
Dagskrá Gæðingamóts Sleipnis Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Mótanefnd   
Fimmtudagur, 12 Ágúst 2010 09:52
Dagskrá opna gæðingamóts Sleipnis 2010. Föstudagur 13. Ágúst

17.00 Forkeppni Tölt.

18.30 Hlé

19.00 250m skeið báðir sprettir

19.30 150m skeið báðir sprettir

20.30 100m skeið 2 umferðir

21.30 B úrslit tölt.

Laugardagur 14. Ágúst

09.00 Forkeppni B flokkur  

10.30 Forkeppni A flokkur

12.30  Matarhlé.

13.30  Forkeppni Unglingaflokkur

14.30 Forkeppni Ungmennaflokkur

15.30 forkeppni Barnaflokkur

16.00. Kaffihlé

16.30  B úrslit B flokkur.sæti 8-15

17.45  B úrslit A flokkur sæti 8-15

20.00  A úrslit tölt.

Sunnudagur  15. Ágúst

13.00 A úrslit unglingaflokkur 1-8 sæti

13.45 A úrslit ungmennaflokkur 1-8 sæti

14.30 A úrslit.B flokkur 1-8 sæti

15.30 Kaffihlé

16.00 A úrslit. Barnaflokkur 1-3 sæti

16:30 A úrslit. A flokkur 1-8 sæti

17:30 Mótsslit

Í forkeppninni verða 3 inn á vellinum í einu, í töltinu verða 2 inn á í einu en í barnaflokknum verður einn inn á í einu og ríða sitt prógram, svo að þú fái aðeins að njóta sín.  

 
Auka skráning í kvöld !!! Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Mótanefnd   
Þriðjudagur, 10 Ágúst 2010 11:31
Gæðingamót Sleipnis  verður haldið helgina 14.-15. ágúst á Brávöllum. Vegna fjölda áskorana verður einnig opið fyrir skráningu í kvöld, þriðjudaginn 10. ágúst á milli 20:00-21:00 í síma: í síma:  846-4582 Guðbjörn og 869-4354 Þóranna.  Við skráningu þarf að gefa upp nafn og kennitölu knapa, nafn og fæðinganúmer hests og keppnisgrein. Knapi og eigandi hests þurfa að vera skráðir í aðildafélög LH.Keppt verður í eftirtöldum flokkum: Barna, unglinga, ungmennaflokki, B flokki og A flokki gæðinga,tölt opnum flokki,  250m skeiði, 150m skeiði og 100m flugaskeiði.  Til þess að skráningin sé tekin gild þarf að vera búið að leggja inn á reikning  fyrir kl 16.00 miðvikudaginn 11. ágúst.  Reikningur: 152-26-100774. kt.590583-0309. Gefa þarf upp kennitölu keppanda sem skýringu. Dagskrá og ráslistar verða birtir síðar. Keppnisgjald er 3000kr pr grein fyrir fullorðna og ungmenni en 2500kr fyrir börn og unglinga. Með von um góða þáttöku. Kveðja,Mótanefnd Sleipnis
 
Opið Gæðingamót Sleipnis 2010 Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Mótanefnd   
Miðvikudagur, 04 Ágúst 2010 22:51

 

Gæðingamót Sleipnis  verður haldið helgina 14.-15. ágúst á Brávöllum. 

Keppt verður í eftirtöldum flokkum: Barna, unglinga, ungmennaflokki, B flokki og A flokki gæðinga,tölt opnum flokki,  250m skeiði, 150m skeiði og 100m flugaskeiði.  

Til þess að skráningin sé tekin gild þarf að vera búið að leggja inn á reikning  fyrir kl 16.00 miðvikudaginn 11. ágúst.  

Reikningur: 152-26-100774. kt.590583-0309. Gefa þarf upp kennitölu keppanda sem skýringu. 

Dagskrá og ráslistar verða birtir síðar.  

 

Við skráningu þarf að gefa upp nafn og kennitölu knapa, nafn og fæðinganúmer hests og keppnisgrein. Knapi og eigandi hests þurfa að vera skráðir í aðildafélög LH.

Skráning fer fram sunnudaginn 8. ágúst og mánudaginn 9. ágúst  frá kl: 20.00- 22:00 í síma:  846-4582 Guðbjörn og 869-4354 Þóranna. Ekki verður tekið við skráningum á öðrum tíma. 

 

Keppnisgjald er 3000kr pr grein fyrir fullorðna og ungmenni en 2500kr fyrir börn og unglinga. Með von um góða þáttöku. 

Kveðja,

Mótanefnd Sleipnis 

 
Opið Gæðingamót Sleipnis 2010 Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Mótanefnd   
Sunnudagur, 25 Júlí 2010 22:43

Ákveðið hefur verið að skella á Gæðingamóti helgina 14.-15. ágúst 2010 og verður mótið haldið á Brávöllum, keppnisvelli Sleipnismanna.  Mótið verður opið fyrir alla og verður keppt í öllum flokkum, það er að segja í  A- og B-flokk barna, unglinga, ungmenna og opnum flokki.  Einnig verður kepp í tölti og skeiði ef að næg þátttaka fæst.  Skráning og dagskrá verður auglýst síðar.

 Því miður er þetta sömu helgi og Íslandsmót barna og unglinga en mótadagskráin er mjög þetta skipuð núna í águst og því ekki auðvelt að finna lausa helgi fyrir þetta mót.

Kveðja stjórnin Wink

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Auglýsingar

Íslandsmót í hestaíþróttum 2010
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. 


•  Skráning fyrir Sleipnisfélaga skal sendast á thordisv@heimsnet.is fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. 

Það sem koma þarf fram með hverri skráningu er: Nafn og kennitala keppanda, IS númer hests, keppnisgrein.

•  Skráningargjald er 4.000 krónur á hverja skráningu og skal leggja inn á reikning 0152-26-100774 kt 590583-0309 fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. Senda kvittun fyrir greiðslu á thordisv@heimsnet.is og setja kennitölu knapa í skýringu.

•  Keppendum stendur til boða að fá hesthúspláss með heyi og spæni nálægt keppnisvelli. Þeir sem vilja nýta sér það hafi samband í síma í síma  698-3168 fyrir 20. ágúst.

•  Engin einkunnalágmörk eru á mótið.

 
Ljósmyndari - reiðhöll

Stjórn félagsins óskar eftir sjálboðaliða sem er tilbúinn til að mynda framgang reiðhallarinnar. Myndirnar verða settar á heimasíðuna að hluta til og einnig notaðar sem heimildir þegar á líður fyrir félagið. Ekki er verra ef sá sami geti skrifað hjá sér helstu atriði hverju sinni. Reiðhöllin er mikið framfaraskref og er áríðandi að halda til haga heimildum um framgang og framtak Sleipnisfélaga  og annarra vellunnara verkefnisins.

 

Ef þú hefur áhuga endilega hafðu samband í síma 868-9982

 

Bestu kveðjur,

Stjórnin.

 
Sjálfboðavinna - Reiðhöll

Nú er svo komið að límtrésgrindinn að reiðhöllinni kemur til okkar á föstudaginn.

Við ætlum að hafa hitting á fimmtudaginn kl 17:00 í Hliðskjálf og fara yfir verkáætlun hallarinnar.

Fyrsta vinnuhelgin er núna um helgina föstudag-laugardag og sunnudag.

Við hvetjum sem flesta til að láta sjá sig á hittingnum og eiga létt spjall.

Þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta á fimmtudaginn geta einnig fylgst með á sleipnir.is en þar mun verkáætlunin koma inn.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja,

Reiðhallarnefndin

 

 
Viltu ganga í Sleipni
Viltu ganga í­ Sleipni? Hafðu þá samband við einhvern í­ stjórninni, nánar auglýst síðar
 

Könnun

Vilt þú taka þátt í sjálfboðaliðastarfinu við Sleipnis-reiðhöllina
 
Þessi fyrirtæki styrkja Sleipni.

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Við styrkjum þau !

Hverjir eru tengdir

Það er/u 31 gestir inni
Hestamannafélagið Sleipnir, keyrt af Joomla! utlit fra SiteGround web hosting, vefhysing Moli.is