|
Skráning hafin á Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna 2010 |
|
|
|
Skrifað af Æskulýðsnefnd
|
|
Laugardagur, 24 Júlí 2010 16:53 |
|
Skráning fer fram hjá aðildarfélögum LH. Síðasti skráningardagur er 29. Júlí. Skráningar hjá Sleipnisfélögum skulu berast á netfangið: rabbih@isholf.is Skráningargjald er 4.000 krónur og greiðist inn á reikning : 0152-26-100774 kt:590583-0309. Senda verður staðfestingu greiðslu á netföngin: thytur1@gmail.com og thorbjorn@sudur.is.
Ath. að skráning er ekki tekin gild nema greiðsla hafi borist. Við skráningu þarf að koma fram nafn keppanda og í hvaða greinum er keppt. Gefa þarf upp IS númer hests og GSM síma þess er skráir. Hestar þurfa að vera grunnskráðir i World Feng. Keppnisgreinar á mótinu eru: Töltkeppni barna-, unglinga- og ungmennaflokkur - Fjórgangur barna-, unglinga- og ungmennaflokkur - Fimmgangur unglinga- og ungmennaflokkur - Gæðingaskeið unglinga- og ungmennaflokkur - Skeið 100m (flugskeið) - Fimikeppni A barna- og unglingaflokkur - Fimikeppni A2 ungmennaflokkur - Töltkeppni T2
Formaður mótanefndar er Sigrún Þórðardóttir s. 660-5826 og veitir hún allar nánari upplýsingar. Umsjónarmaður keppnishrossa er Steinbjörn Tryggvason s. 893-5070 Tjaldsvæðið í Kirkjuhvammi verður með tilboð fyrir mótsgesti Íslandsmóts. Verð 3.000 per mann vikupassi eða 1.500 per mann helgarpassi. Útilegukortið gildir ekki þessa viku. Nánari upplýsingar hjá Erlu í síma 899-0008 |
|
|
Hestaíþróttir á Unglingalandsmóti UMFÍ í Borgarnesi |
|
|
|
Skrifað af Stjórn
|
|
Mánudagur, 12 Júlí 2010 11:37 |
Hestaíþróttir á Unglingalandsmóti UMFÍ í Borgarnesi
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Borgarnesi nú um verslunarmannahelgina, 30 .7 – 1.8. Meðal keppnisgreina eru hestaíþróttir. Keppt verður í tveimur flokkum, barnaflokki ( 11 – 13. ára) og unglingaflokki (14 – 18 ára) í tölti og fjórgangi. Keppnin fer fram á svæði hestamannafélagins Skugga við Vindás, rétt ofan við Borgarnes. Skráning hefst 12. júlí og lýkur 23. júlí og fer fram í gegn um heimasíðu mótsins, http://www.umfi.is/umfi09/unglingalandsmot/. Þar er einnig að finna meiri upplýsingar. Forkeppnin hefst kl. 11 föstudaginn 30. júlí og síðan fara úrslit fram á laugardag. Þátttakendur geta fengið hesta hýsta á mótsstað og eins verður unnt að halda þeim til beitar. Vona aðstandendur mótsins til þess að sem flestir mæti og taki þátt í því sem boðið verður upp á um helgina. Sérgreinastjóri hestaíþrótta gefur allar nánari upplýsingar, s: 898-4569 netfang kristgis@simnet.is . Kristján Gíslason sérgreinastjóri |
|
Vorferð Æskulýðsnefndar aflýst. |
|
|
|
Skrifað af SRH
|
|
Föstudagur, 11 Júní 2010 00:21 |
|
Vegna mjög dræmrar þátttöku er fyrirhugaðri vor / óvissuferð Æskulýðsnefndar sem áætluð var nk. sunnudag aflýst. Kveðja, Æskulýðsnefnd |
|
Sleipnissumarferðin! |
|
|
|
Skrifað af Ritstjóri 2
|
|
Miðvikudagur, 09 Júní 2010 17:54 |
|
Kæru ferðafélagar. Nú er því miður komið að því að við verðum að aflýsa fyrirhugaðri félagsferð daganna 16-20 júní. Reynt verður seinna í sumar að setja saman ,,litla“ ferð um nágrennið og verður það auglýst síðar hér á vefnum. En það fer allt eftir því hvernig þetta bévítans flensustand þróast. Plan B: okkur langar til að hitta ykkur upp í Úthlíð, laugardaginn 19 júní, þar sem við getum tjaldað eða leigt okkur smáhýsi á mjög sanngjörnu verði. Upplýsingar um smáhýsinn veitir Óli Björns. Sími 8943209 eða á uthlid@uthlid.is Ball verður í réttinni með Geirmundi – svaka fjör í góðum félagsskap, þeir sem hafa hesta við góða heilsu geta tekið þá með – riðið verður að Brúarárskörðum á laugardeginum.Endilega sendið póst á arblik@simnet.is ef þið sjáið ykkur fært um að koma með okkur og látið aðra vita Með kveðju Ferðanefndin |
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |