Forsíða
Vorferð Æskulýðsnefndar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af SRH   
Þriðjudagur, 08 Júní 2010 11:20

Jæja þá er farið að styttast í vorferðina okkar. Sunnudaginn 13 júní förum við,

ef næg þátttaka fæst, með rútu frá Hliðskjálf út í óvissuna. Skráning í ferðina í síma 897-3101 eða á netfangið rabbih@isholf.is. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir kl. 18:00 nk. fimmtudag. Mæting kl. 10:30 á sunnudagsmorgun við Hliðskjálf, áætluð heimkoma er milli kl. 17-18. Klæðnaður eftir veðri, sundföt í poka og 1.500 kall í buddunni fyrir rútu og ?. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest, velkomið að hafa með sér gesti.

Með kveðju,Æskulýðsnefnd Sleipnis

 
Gæðingamóti frestað Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Ritstjóri 2   
Mánudagur, 31 Maí 2010 21:19

Stjórn Sleipnis hefur ákveðið að fresta Gæðingamóti Sleipnis sem halda átti um næstu helgi vegna hestakvefpestarinnar.

EFtir miðjan júní munum við taka stöðuna á því hvort grundvöllur verður fyrir því að halda Gæðingamótið seinna í sumar.

Með kveðju,

Stjórnin

 
Framboðsfundur í Árborg, fundargerð. Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Ritstjóri 2   
Föstudagur, 28 Maí 2010 20:16

Mánudagskvöldið 25.maí síðastliðið var haldin framboðsfundur með öllum framboðum í Árborg um málefni hestamanna.

Fundurinn var vel sóttur af framboðum og hestamönnum.

Líflegar umræður sköpuðust og ýmis sjónarmið komu fram.

Hér fyrir neðan fylgir fundargerð fundarins sem var rituð af Torfa Ragnari Sigurðssyni.

Lesa meira...
 
Ferðafundur og jakkasala Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Ritstjóri 2   
Sunnudagur, 23 Maí 2010 15:08

Fundur vegna fyrirhugaðrar sumarferðar  verður í félagsheimilinu Hlíðskjálf þriðjudaginn 25. mai  klukkan 20.00 og skráning á staðnum.  Einnig verða seldir félagsjakkar fyrir fundinn sjá auglýsingu hér að neðan,

Kæru Sleipnisfélagar ! 

Nú er staðan þannig hjá okkur í hestamannafélaginu Sleipni að sýnishorn af „ Sleipnispeysum / softshell"  peysum eru komin í hús og eru tilbúnir til mátunar og pöntunar í Hliðskjálf  dagana 24. og 25.maí kl;18. – 20.00.

Mjög nauðsynlegt er að allir komi og máti peysu við sitt hæfi og panti svo hægt sé að hafa pöntunina rétta. Mjög gott verð! Athugið að einnig eru barnastærðir frá ca. 8 ára aldri.

Það er von okkar í stjórn Sleipnis að félagsmenn sýni peysukaupum þessum áhuga og að grundvöllur sé fyrir svona hugmynd í okkar félagi. Það er alltaf gaman að sjá, t.d. á stórum mótum og eða öðrum viðburðum á meðal hestamanna, hestamenn merkta sínu hestamannafélagi og vera stoltir af.

Verð og aðrar upplýsingar varðandi greiðslu er veittar við mátun.

Hlökkum til að sjá ykkur – kaffi á könnunni – og notalegheit.

f.h. Sleipnis

Ingibjörg Stefánsdóttir og Hrund Harðardóttir   / gsm: 864-2972 gsm: 861-6609

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Auglýsingar

Íslandsmót í hestaíþróttum 2010
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. 


•  Skráning fyrir Sleipnisfélaga skal sendast á thordisv@heimsnet.is fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. 

Það sem koma þarf fram með hverri skráningu er: Nafn og kennitala keppanda, IS númer hests, keppnisgrein.

•  Skráningargjald er 4.000 krónur á hverja skráningu og skal leggja inn á reikning 0152-26-100774 kt 590583-0309 fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. Senda kvittun fyrir greiðslu á thordisv@heimsnet.is og setja kennitölu knapa í skýringu.

•  Keppendum stendur til boða að fá hesthúspláss með heyi og spæni nálægt keppnisvelli. Þeir sem vilja nýta sér það hafi samband í síma í síma  698-3168 fyrir 20. ágúst.

•  Engin einkunnalágmörk eru á mótið.

 
Ljósmyndari - reiðhöll

Stjórn félagsins óskar eftir sjálboðaliða sem er tilbúinn til að mynda framgang reiðhallarinnar. Myndirnar verða settar á heimasíðuna að hluta til og einnig notaðar sem heimildir þegar á líður fyrir félagið. Ekki er verra ef sá sami geti skrifað hjá sér helstu atriði hverju sinni. Reiðhöllin er mikið framfaraskref og er áríðandi að halda til haga heimildum um framgang og framtak Sleipnisfélaga  og annarra vellunnara verkefnisins.

 

Ef þú hefur áhuga endilega hafðu samband í síma 868-9982

 

Bestu kveðjur,

Stjórnin.

 
Sjálfboðavinna - Reiðhöll

Nú er svo komið að límtrésgrindinn að reiðhöllinni kemur til okkar á föstudaginn.

Við ætlum að hafa hitting á fimmtudaginn kl 17:00 í Hliðskjálf og fara yfir verkáætlun hallarinnar.

Fyrsta vinnuhelgin er núna um helgina föstudag-laugardag og sunnudag.

Við hvetjum sem flesta til að láta sjá sig á hittingnum og eiga létt spjall.

Þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta á fimmtudaginn geta einnig fylgst með á sleipnir.is en þar mun verkáætlunin koma inn.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja,

Reiðhallarnefndin

 

 
Viltu ganga í Sleipni
Viltu ganga í­ Sleipni? Hafðu þá samband við einhvern í­ stjórninni, nánar auglýst síðar
 

Könnun

Vilt þú taka þátt í sjálfboðaliðastarfinu við Sleipnis-reiðhöllina
 
Þessi fyrirtæki styrkja Sleipni.

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Við styrkjum þau !

Hverjir eru tengdir

Það er/u 34 gestir inni
Hestamannafélagið Sleipnir, keyrt af Joomla! utlit fra SiteGround web hosting, vefhysing Moli.is