Forsíða
Sjálboðaliðastarf Reiðhöllinni Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Stjórn   
Föstudagur, 07 Maí 2010 00:43

Starfið við reiðhöllina hefur gengið frábærlega í vor og margir hafa mætt í sínum frítíma og lagt hönd á plóg.

Stutt er í fokheldisvottorðið og stefnum við á að reyna ná því í næstu viku. Til að það takist þurfum við að ná góðri vinnuhelgi, föstudag, laugardag og sunnudag.Því reynir á að sem flestir sem treysta sér til mæti nú um helgina. Nú eiga margir að geta komist að og hægt að nýta þau handtök sem bjóðast.

Þeir sem eiga létt handverkfæri mega gjarnan koma með þau með sér.

Vinna hefst á föstudag kl 13:00, laugardag kl 08:00 og sunnudag kl 10:00. Eitthvað ljúffengt verður í eldhúsinu í hádeginu, laugardag og sunnudag. 

Sjáumst vonandi hress og kát að Brávöllum

 
Tilkynning frá Æskulýðsnefnd Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af SRH   
Föstudagur, 07 Maí 2010 00:03

Öll hestatengd dagskrá á okkar vegum fellur niður vegna pestarinnar.  

Við þökkum fyrir skemmtilegt vetrarstarf það sem af er og viljum einnig koma á framfæri sérstöku þakklæti til allra þeirra aðila sem hugðust styrkja æskulýðsstarfið  nú í vor.

Fyrirhuguð óvissuferð ( rútuferð ) verður nánar auglýst síðar.

Með kveðju - nefndin

 
Hestafjöri 2010 aflýst Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af SRH   
Fimmtudagur, 06 Maí 2010 15:33
Framkvæmdastjórn Hestafjörs 2010 hefur ákveðið að fella niður fyrirhugaðan viðburð þetta árið vegna viðvarandi veikinda hrossa.  Flest félögin eru í vandræðum og nú er ljóst að ekki er grundvöllur fyrir mótshaldi þann 15.maí nk.

Til barna og unglinga sem æft hafa atriði sín fyrir Hestafjör þá búum við öll að þeirri vinnu og að ári flautum við til leiks aftur !

Nú er nægur tími til að senda tillögur til Hestafjörs sem verður í mars/apríl 2011

 

f.h. Hestafjörs 2010 / Æskulýðsnefndar Sleipnis

Stefanía Sigurðardóttir

 
Íþróttamóti Sleipnis en frestað Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Stjórn   
Fimmtudagur, 06 Maí 2010 08:58
Til að fyrirbyggja allan miskilning þá er hér með ítrekað að íþróttamóti Sleipnis er en frestað um sinn.
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Auglýsingar

Íslandsmót í hestaíþróttum 2010
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. 


•  Skráning fyrir Sleipnisfélaga skal sendast á thordisv@heimsnet.is fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. 

Það sem koma þarf fram með hverri skráningu er: Nafn og kennitala keppanda, IS númer hests, keppnisgrein.

•  Skráningargjald er 4.000 krónur á hverja skráningu og skal leggja inn á reikning 0152-26-100774 kt 590583-0309 fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. Senda kvittun fyrir greiðslu á thordisv@heimsnet.is og setja kennitölu knapa í skýringu.

•  Keppendum stendur til boða að fá hesthúspláss með heyi og spæni nálægt keppnisvelli. Þeir sem vilja nýta sér það hafi samband í síma í síma  698-3168 fyrir 20. ágúst.

•  Engin einkunnalágmörk eru á mótið.

 
Ljósmyndari - reiðhöll

Stjórn félagsins óskar eftir sjálboðaliða sem er tilbúinn til að mynda framgang reiðhallarinnar. Myndirnar verða settar á heimasíðuna að hluta til og einnig notaðar sem heimildir þegar á líður fyrir félagið. Ekki er verra ef sá sami geti skrifað hjá sér helstu atriði hverju sinni. Reiðhöllin er mikið framfaraskref og er áríðandi að halda til haga heimildum um framgang og framtak Sleipnisfélaga  og annarra vellunnara verkefnisins.

 

Ef þú hefur áhuga endilega hafðu samband í síma 868-9982

 

Bestu kveðjur,

Stjórnin.

 
Sjálfboðavinna - Reiðhöll

Nú er svo komið að límtrésgrindinn að reiðhöllinni kemur til okkar á föstudaginn.

Við ætlum að hafa hitting á fimmtudaginn kl 17:00 í Hliðskjálf og fara yfir verkáætlun hallarinnar.

Fyrsta vinnuhelgin er núna um helgina föstudag-laugardag og sunnudag.

Við hvetjum sem flesta til að láta sjá sig á hittingnum og eiga létt spjall.

Þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta á fimmtudaginn geta einnig fylgst með á sleipnir.is en þar mun verkáætlunin koma inn.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja,

Reiðhallarnefndin

 

 
Viltu ganga í Sleipni
Viltu ganga í­ Sleipni? Hafðu þá samband við einhvern í­ stjórninni, nánar auglýst síðar
 

Könnun

Vilt þú taka þátt í sjálfboðaliðastarfinu við Sleipnis-reiðhöllina
 
Þessi fyrirtæki styrkja Sleipni.

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Við styrkjum þau !

Hverjir eru tengdir

Það er/u 39 gestir inni
Hestamannafélagið Sleipnir, keyrt af Joomla! utlit fra SiteGround web hosting, vefhysing Moli.is