![]() |
![]() |
![]() |
| Íslandsmót í hestaíþróttum 2010 |
| Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst.
Það sem koma þarf fram með hverri skráningu er: Nafn og kennitala keppanda, IS númer hests, keppnisgrein. |
| Ljósmyndari - reiðhöll |
| Stjórn félagsins óskar eftir sjálboðaliða sem er tilbúinn til að mynda framgang reiðhallarinnar. Myndirnar verða settar á heimasíðuna að hluta til og einnig notaðar sem heimildir þegar á líður fyrir félagið. Ekki er verra ef sá sami geti skrifað hjá sér helstu atriði hverju sinni. Reiðhöllin er mikið framfaraskref og er áríðandi að halda til haga heimildum um framgang og framtak Sleipnisfélaga og annarra vellunnara verkefnisins.
Ef þú hefur áhuga endilega hafðu samband í síma 868-9982
Bestu kveðjur, Stjórnin. |
| Sjálfboðavinna - Reiðhöll |
Nú er svo komið að límtrésgrindinn að reiðhöllinni kemur til okkar á föstudaginn. Við ætlum að hafa hitting á fimmtudaginn kl 17:00 í Hliðskjálf og fara yfir verkáætlun hallarinnar. Fyrsta vinnuhelgin er núna um helgina föstudag-laugardag og sunnudag. Við hvetjum sem flesta til að láta sjá sig á hittingnum og eiga létt spjall. Þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta á fimmtudaginn geta einnig fylgst með á sleipnir.is en þar mun verkáætlunin koma inn. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Reiðhallarnefndin
|
| Viltu ganga í Sleipni |
| Viltu ganga í Sleipni? Hafðu þá samband við einhvern í stjórninni, nánar auglýst síðar |