|
Skrifað af Stjórn
|
|
Miðvikudagur, 12 Maí 2010 22:19 |
|
Góða kvöldið kæru félagar Síðasta helgi í sjálboðavinnu var mjög vel sótt og var stemmingin frábær. Takk fyrir það. Því miður endist okkur ekki flasningaefnið til þess að klára það sem áætlað var.Nú er það efni komið á staðinn og ætla fyrstu menn að mæta klukkan átta í fyrramálið og skrúfa niður flasningarnar á þakið. Stefnt er að því að klára það verk á morgun svo hægt verði að setja þakgluggann á laugardaginn. En til þess að það takist þarf góðan hóp af mönnum og konum, sérstaklega á morgun fimmtudag. Það væri frábært ef þú sæir þér fært um að mæta á morgun og um helgina þó ekki væri nema hluta úr degi. Sjáumst hress á morgun og um helgina, með borvélina að vopni.
|