Forsíða Sleipnisskjöldur
Sleipnisskjöldur Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Ritstjóri   
Fimmtudagur, 17 Apríl 2008 00:23

Sleipnisskjöldurinn
Heiðursverðlaun Hestamannafélagsins Sleipnis.

Hugmynd um Sleipnisskjöldin kom fyrst fram árið 1950 þegar farið var að ræða um að kappreiðamótin ættu ekki að snúast um það eitt að reyna flýti hesta á hlaupum. Hið eftirsótta nú væri hinn fjölhæfi gæðingur. Hann skyldi verðlauna ekki síður en hlaupagarpana. Gæðinginn sem allir vilja eiga. Ríkharður Jónsson myndhöggvari var fenginn til að skera út skjöld úr tré, og var útskorinn hestsmynd á honum. Hafði listamaðurinn til hliðsjónar myndir af hesti á góðu skeiði og hét sá hestur Helluvaðs-Gráni í eigu Jóns Pálssonar dýralæknis. Átta skeifur eru skornar í eftir brún skjaldarins og inni í hverri skeifu er stafur í nafnið SLEIPNIR. Vinnst hann aldrei til eignar, en eigandi gæðingsins varðveitir skjöldinn milli móta og á að fá verðlaunaskjal með.

Reglugerðin um Sleipnisskjöldinn var samþykkt á aðalfundi 2. mars 1952, og voru fjögur meginatriði sett fram við dóma:

1. Fjör og ljúf skapgerð.
2. Allar gangtegurndir hreinar, hár og fagur fótaburður.
3. Hár og fagur höfuðburður.
4. Tamning góð, og skal knapi auðveldlega geta skipt um gangtegund eftir fyrirmælum dómnefndar.

 

Skjaldarhafar Sleipnis

Blakkur Gísla Bjarnasonar, 7 vetra
Gimsteinn Brynjólfs Gíslasonar
Blakkur Gísla Bjarnasonar, 9 vetra
Perla Jóns Bjarnasonar
Móalingur Jóns Guðnasonar
Háfeti Jóns Bjanrasonar
Bráinn Ólafs Þórðarsonar á Hlíðarenda
Blakkur Bjanra Bjanrasonar á Laugarvatni
Fjöður Þorkels Bjarnasonar Laugarvatni
Svanur Þórðar Ólafssonar á Hlíðarenda
Rauður Ólafs Sigurðssonar í Gegnishólum
Stjarna Jóns Bjarnasonar
Mósi Páls Jónssonar, tannlæknis
Blesi Skúla Steinssonar, 5 vetra
Flipi Jóns Bjarnasonar, 7 vetra
Silfurtoppur Sigmundar Ámundasonar, Hraungerði
Blesi Skúla Steinssonar, 8 vetra
Reginn Gunnars Einarssonar, 6 vetra
Blossi Jóns Bjarnasonar, 9 vetra
Fengur Hafsteins Jónssonar, Stokkseryi, 10 vetra
Grettir Skúla Steinssonar, 8 vetra
Eitill Bjarna E. Sigurðssonar, Hvoli, 9 vetra
Andri Skúla Steinssonar, 11 vetra
Rauði-Núpur Skúla Steinssonar, 11 vetra
Vinur Snorra Sigfinssonar og Iðunnar Gísladóttur
Hlýja Skúla Steinssonar, 6 vetra
Frami (frá Kirkjubæ) Skúla Steinssonar, 6 vetra
Rauði-Núpur Skúla Steinssonar, 15 vetra
Stubbur Helga Eggertssonar
Vinur Snorra Sigfinnssonar og Iðunnar Gísladóttur
Rauði-Núpur Skúla Steinssonar
Perla Hafsteins Steindórssonar
Byr Magnúsar Skúlasonar
Byr Skúla Steinssonar
Flugvar Rúnu Einarsdóttur
Mímir Magnúsar Hákonarsonar
Mímir Magnúsar Hákonarsonar
Hrönn Elínar Árnadóttur
Fengur Björns Eiríkssonar
Huginn Þorvaldar Sveinssonar
Blakkur Snorra Ólafssonar
Júlí Björns Eiríkssonar
Huginn Þorvaldar Sveinssonar
Víkivaki Svanhvítar Kristjánsdóttur
Askur Hallgríms Birkissonar og Sigurbjörns Bárðarsonar
Muggur Brynjars J. Stefánss. og Guðmundar Sigurjónss.
Roði Halldórs Vilhjálmssonar og Einars Hermundssonar
Roði Halldórs Vilhjálmssonar og Einars Hermundssonar
Flauta Ara B. Thorarensen / Brynjars J. Stefánssonar
Súla(frá Bjarnastöðum)Hugrúnar Jóhannsdóttur
Oddrún  Svanhvítar Kristjánsdóttur

Selfossi, 24.06.1950
Selfossi, 07.07.1951
Selfossi, 1952
Hróarsholti, 1953
Hróarsholti, 1954
Hróarsholti, 1956
Hróarsholti, 1957
Hróarsholti, 22.06.1958
Hróarsholti, 21.06.1959
Hróarsholti, 1961
Hróarsholti, 1962
Sandlæk, 1963
Sandlæk, 21 06.1964
Sandlæk, 11.07.1965
Sandlæk, 07.08.1966
Sandlæk, 13.08.1967
Murneyri, 04.08.1968
Murneyri, 13.07.1969
Murneyri, 09.08.1970
Murneyri, 11.07.1971
Murneyri, 16.07.1972
Murneyri, 15.07.1973
Murneyri, 11.08.1974
Murneyri, 20.07.1975
Murneyri, 18.07.1976
Murneyri, 17.07.1977
Murneyri. 02.07.1978
Murneyri, 22.07.1979
Murneyri, 1980
Murneyri, 1981
Murneyri, 1982
Murneyri, 1983
Murneyri, 1984
Murneyri, 1985
Murneyri, 1986
Murneyri, 1987
Murneyri, 1988
Murneyri, 1989
Murneyri, 1990
Murneyri, 1991
Murneyri, 1992
Murneyri, 1993
Murneyri, 1994
Murneyri, 1995
Murneyri, 1996
Murneyri, 1997
Murneyri, 1998
Murneyri, 1999
Murneyri, 2000
Murneyri, 2001
Murneyri, 2003

 

(Verðlaunaafhending féll niður 1955. Ekki er vitað um skjaldarhafa 1960).

Heimild: Afmælisrit Sleipnis, 50 ára, 1979.

 

 

 

Auglýsingar

Íslandsmót í hestaíþróttum 2010
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. 


•  Skráning fyrir Sleipnisfélaga skal sendast á thordisv@heimsnet.is fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. 

Það sem koma þarf fram með hverri skráningu er: Nafn og kennitala keppanda, IS númer hests, keppnisgrein.

•  Skráningargjald er 4.000 krónur á hverja skráningu og skal leggja inn á reikning 0152-26-100774 kt 590583-0309 fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. Senda kvittun fyrir greiðslu á thordisv@heimsnet.is og setja kennitölu knapa í skýringu.

•  Keppendum stendur til boða að fá hesthúspláss með heyi og spæni nálægt keppnisvelli. Þeir sem vilja nýta sér það hafi samband í síma í síma  698-3168 fyrir 20. ágúst.

•  Engin einkunnalágmörk eru á mótið.

 
Ljósmyndari - reiðhöll

Stjórn félagsins óskar eftir sjálboðaliða sem er tilbúinn til að mynda framgang reiðhallarinnar. Myndirnar verða settar á heimasíðuna að hluta til og einnig notaðar sem heimildir þegar á líður fyrir félagið. Ekki er verra ef sá sami geti skrifað hjá sér helstu atriði hverju sinni. Reiðhöllin er mikið framfaraskref og er áríðandi að halda til haga heimildum um framgang og framtak Sleipnisfélaga  og annarra vellunnara verkefnisins.

 

Ef þú hefur áhuga endilega hafðu samband í síma 868-9982

 

Bestu kveðjur,

Stjórnin.

 
Sjálfboðavinna - Reiðhöll

Nú er svo komið að límtrésgrindinn að reiðhöllinni kemur til okkar á föstudaginn.

Við ætlum að hafa hitting á fimmtudaginn kl 17:00 í Hliðskjálf og fara yfir verkáætlun hallarinnar.

Fyrsta vinnuhelgin er núna um helgina föstudag-laugardag og sunnudag.

Við hvetjum sem flesta til að láta sjá sig á hittingnum og eiga létt spjall.

Þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta á fimmtudaginn geta einnig fylgst með á sleipnir.is en þar mun verkáætlunin koma inn.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja,

Reiðhallarnefndin

 

 
Viltu ganga í Sleipni
Viltu ganga í­ Sleipni? Hafðu þá samband við einhvern í­ stjórninni, nánar auglýst síðar
 
Þessi fyrirtæki styrkja Sleipni.

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Við styrkjum þau !
Hestamannafélagið Sleipnir, keyrt af Joomla! utlit fra SiteGround web hosting, vefhysing Moli.is