Forsíða Saga Sleipnis
Saga Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Ritstjóri   
Fimmtudagur, 17 Apríl 2008 00:49

Stiklur úr sögu Hestamannafélagsins Sleipnis

Hestamannafélagið Sleipnir var stofnað sunndaginn 9. júní árið 1929 að Skeggjastöðum í samkomuhúsi Hraungerðishrepps eftir uppástungu nokkurra manna í Hraungerðis- og Villingaholtshreppi. Á fundinum voru mættir 14 menn. Og allt síðan þá hefur félagið verið virkt. Félagið hefur staðið fyrir umfangsmikilli starfsemi af ýmsum toga. Fyrstu kappreiðar félagsins voru haldnar á Villingaholtsholti, 4. ágúst 1929, kl. 3. e.h. Þar voru reyndir 27 hestar. Aðalfundur var haldinn 21. desember sama ár. Á þeim fundi var ákveðið að gera kappreiðarvöll á Hestaþingsflöt í Hróarsholtslandi. Fyrri kappreiðar sumarsins 1930 voru haldnar á Villingaholti þann 1. júní, en 27. júlí var völlurinn á Hestaþingsflöt vígður og haldnar kappreiðar. Starf Sleipnis var nú komið í fast form, síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið.

Sleipnir gerðist aðili að Landssambandi hestamannafélaga árið 1950. Árið 1950 kom fyrst fram hugmyndin um Sleipnisskjöldinn sem verðlaun fyrir gæðingakeppni. Ríkarður Jónsson var fenginn til að skera út skjöld úr tré, og var útskorin hestsmynd á honum. Vinnst hann aldrei til eignar en hefur verið veittur árlega síðan í gæðingakeppni. Reiðvegi bar fyrst á góma árið 1952 og komst sá fyrsti í gagnið 1954, er ruddur var "vegaspotti með jarðýtu yfir kafla í landi Selfossbæja í áttina til Kaldaðarnesflata". "Skrautreiðin" á sér upphaf hjá Sleipni en kringum 1950 voru hestamenn í Sleipni farnir að sýna hópreið á hestum sínum við ýmis tækifæri. Von bráðar voru svo Sleipnisfélagar búnir að fá sér samlita búninga, sem samanstendur af bláum jakka og hvítum buxum. Árið 1964 áttu unnu Sleipnismenn sér það til frægðar að eiga fegursta hópinn í hópreið hestamanna að Skógarhólum á Þingvöllum. Árið 1963 hófst samstarf við Smára um hestaþing að Sandlækjarholti og síðan frá árinu 1968 að Murneyri. 15. maí 1971 hófst firmakeppni. 49 fyrirtæki tóku þátt í keppninni þetta fyrsta ár. Stofnun íþróttanefndar var annað mikið mál sem kom fram á aðalfundi vorið 1976. Íþróttadeild var stofnuð árið 1978, en við inngöngu L.H. í Í.S.Í., var deildin að fullu sameinuð Sleipni árið 1998 og heldur m.a. árlegt meistaramót Sleipnis í hestaíþróttum.

Starfsemi félagsins er af ýmsum toga, baðtúr til strandar, grilltúr, þorrareið og þorrablót, kaffitúrar í nærsveitir, firmakeppni, vetrarmót, vormót í hestaíþróttum auk þátttöku í fjórðungs- og landsmótum. Reglulega eru haldnir fræðslu- og skemmtifundir, námskeiðahald, einnig má nefnda rekstur reiðskóla í samvinnu við íþrótta- og tómstundaráð Árborgar.

Sleipnir er aðili að Rangárbökkum sf., ásamt félögum í Árnes-, Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslum. Aðalfundur er æðsta stofnun félagsins.

Unnið úr Afmælisriti Sleipnis 50 ára árið 1979; Sleipnir, 50 ára starfssaga, eftir Pál Lýðsson og úr Afmælisriti Sleipnis 70 ára árið 1999; Árvarp formanns, eftir Sverri Ágústsson, formann.

 

Auglýsingar

Íslandsmót í hestaíþróttum 2010
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. 


•  Skráning fyrir Sleipnisfélaga skal sendast á thordisv@heimsnet.is fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. 

Það sem koma þarf fram með hverri skráningu er: Nafn og kennitala keppanda, IS númer hests, keppnisgrein.

•  Skráningargjald er 4.000 krónur á hverja skráningu og skal leggja inn á reikning 0152-26-100774 kt 590583-0309 fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. Senda kvittun fyrir greiðslu á thordisv@heimsnet.is og setja kennitölu knapa í skýringu.

•  Keppendum stendur til boða að fá hesthúspláss með heyi og spæni nálægt keppnisvelli. Þeir sem vilja nýta sér það hafi samband í síma í síma  698-3168 fyrir 20. ágúst.

•  Engin einkunnalágmörk eru á mótið.

 
Ljósmyndari - reiðhöll

Stjórn félagsins óskar eftir sjálboðaliða sem er tilbúinn til að mynda framgang reiðhallarinnar. Myndirnar verða settar á heimasíðuna að hluta til og einnig notaðar sem heimildir þegar á líður fyrir félagið. Ekki er verra ef sá sami geti skrifað hjá sér helstu atriði hverju sinni. Reiðhöllin er mikið framfaraskref og er áríðandi að halda til haga heimildum um framgang og framtak Sleipnisfélaga  og annarra vellunnara verkefnisins.

 

Ef þú hefur áhuga endilega hafðu samband í síma 868-9982

 

Bestu kveðjur,

Stjórnin.

 
Sjálfboðavinna - Reiðhöll

Nú er svo komið að límtrésgrindinn að reiðhöllinni kemur til okkar á föstudaginn.

Við ætlum að hafa hitting á fimmtudaginn kl 17:00 í Hliðskjálf og fara yfir verkáætlun hallarinnar.

Fyrsta vinnuhelgin er núna um helgina föstudag-laugardag og sunnudag.

Við hvetjum sem flesta til að láta sjá sig á hittingnum og eiga létt spjall.

Þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta á fimmtudaginn geta einnig fylgst með á sleipnir.is en þar mun verkáætlunin koma inn.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja,

Reiðhallarnefndin

 

 
Viltu ganga í Sleipni
Viltu ganga í­ Sleipni? Hafðu þá samband við einhvern í­ stjórninni, nánar auglýst síðar
 
Þessi fyrirtæki styrkja Sleipni.

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Við styrkjum þau !
Hestamannafélagið Sleipnir, keyrt af Joomla! utlit fra SiteGround web hosting, vefhysing Moli.is