|
Íslandsmót í hestaíþróttum 2010 |
| Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. • Skráning fyrir Sleipnisfélaga skal sendast á thordisv@heimsnet.is fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst.
Það sem koma þarf fram með hverri skráningu er: Nafn og kennitala keppanda, IS númer hests, keppnisgrein.
• Skráningargjald er 4.000 krónur á hverja skráningu og skal leggja inn á reikning 0152-26-100774 kt 590583-0309 fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. Senda kvittun fyrir greiðslu á thordisv@heimsnet.is og setja kennitölu knapa í skýringu.
• Keppendum stendur til boða að fá hesthúspláss með heyi og spæni nálægt keppnisvelli. Þeir sem vilja nýta sér það hafi samband í síma í síma 698-3168 fyrir 20. ágúst.
• Engin einkunnalágmörk eru á mótið. |
|
|
| Stjórn félagsins óskar eftir sjálboðaliða sem er tilbúinn til að mynda framgang reiðhallarinnar. Myndirnar verða settar á heimasíðuna að hluta til og einnig notaðar sem heimildir þegar á líður fyrir félagið. Ekki er verra ef sá sami geti skrifað hjá sér helstu atriði hverju sinni. Reiðhöllin er mikið framfaraskref og er áríðandi að halda til haga heimildum um framgang og framtak Sleipnisfélaga og annarra vellunnara verkefnisins. Ef þú hefur áhuga endilega hafðu samband í síma 868-9982 Bestu kveðjur, Stjórnin. |
|
|
|
Sjálfboðavinna - Reiðhöll |
Nú er svo komið að límtrésgrindinn að reiðhöllinni kemur til okkar á föstudaginn. Við ætlum að hafa hitting á fimmtudaginn kl 17:00 í Hliðskjálf og fara yfir verkáætlun hallarinnar. Fyrsta vinnuhelgin er núna um helgina föstudag-laugardag og sunnudag. Við hvetjum sem flesta til að láta sjá sig á hittingnum og eiga létt spjall. Þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta á fimmtudaginn geta einnig fylgst með á sleipnir.is en þar mun verkáætlunin koma inn. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Reiðhallarnefndin |
|
|
| Viltu ganga í Sleipni? Hafðu þá samband við einhvern í stjórninni, nánar auglýst síðar |
|
|