Næsta laugardag verður sannkallaður hátíðisdagur hestamanna.  Vertarnir á Kríunni ætla að kveikja upp í grillinu og vera með gómætan grillmat í boði á milli klukkan 16 og 18. Tilvalin laugardagsreiðtúr fyrir unga sem aldna. Um kvöldið verður svo hugguleg stemming á Kríunni þegar Labbi fyrrum Glórubóndi ásamt syni mætir á fornar slóðir um tíuleytið og spilar og syngur eins og honum einum er lagið fram eftir kvöldi.
Hestamenn nú skulum við nota tækifærið og gera okkur glaðan dag saman. 
Vel væri þegið ef þeir sem ákveðnir eru í að mæta í grillið tilkynni þátttöku með sms eða símtali í síma 897-7643 eða í tölvupósti á kriumyri@internet.is til að hjálpa vertunum að áætla innkaup.
Nánari upplýsingar og fréttir verða í vikunni á krian.is