Félagsheimilið Hliðskjálf:

Bryndís Guðmundsdóttir tekur við pöntunum vegna leigu á Hliðskjalf á netfang: husnefnd@sleipnir.is
Sjá má bókunarstöðu félagsheimilis HÉR.

 

Reiðhöllin:

Stjórn Sleipnishallarinnar ehf

Innkoma í reiðhöll:

Gengið er inn að austanverðu   um gönguhurð - rafrænn lykill opnar inn. 

Notkunarreglur Reiðhallar:

Almennar reglur Sleipnishallarinnar

Reiðhöllin er til afnota fyrir skuldlausa Sleipnisfélaga með áskriftaraðgengi. Handhafar árs- og mánaðarkorta hafa aðgang að reiðhöllinni þegar hún er ekki í annarri notkun. Miðað er við að reiðhöllinn sé almennt í notkun frá kl. 06:00 – 24:00. Þeir sem hafa keypt einkatíma í reiðhöllinni hafa hana einir til umráða.


Á heimasíðu Sleipnis (sjá www.sleipnir.is) má sjá tímaskipulag reiðhallarinnar.

HÉR má sjá bókunarstöðu reiðhallarinnar.

HÉR má fá nánari upplýsingar um aðgang og sölu aðgangslykla.

Tengiliður vegna reiðhallarinnar er - Sigurvaldi R. Hafsteinsson. Netfang: sleipnir@sleipnir.is / sími 897 – 1299.

Í fylgd með fullorðnum Sleipnisfélaga með aðgengi að reiðhöllinni mega börn/unglingar 16 ára og yngri nota reiðhöllina endurgjaldslaust

Hundar mega ekki vera lausir í höllinni.

Reykingar eru bannaðar.

Henda skal rusli í ruslafötur, hreinsa upp skít og ætíð ganga vel um.

Gestir skulu sýna knöpum og hestum tillitsemi og gæta fyllsta öryggis.

Reglur reiðvallarins