Ný og breytt kortasjá reiðleiða
Búið er að uppfæra kortasjá reiðleiða í nýjan gagnagrunn sem er hraðvirkari og einfaldari í notkun.
Farið er inn á kortasjá um heimasíðu LH, www.lhhestar.is og smellt á flipa hægra megin á síðunni. Einnig er hægt að fara inn á kortasjá um tengla sem er að finna á heimasíðum flestra hestamannafélaga eða fara beint inn á slóðina www.map.is/lh
Búið að setja inn í kortasjána 11325 km - sjá ferla á upphafskorti kortasjár.
Á upphafssíðu kortasjár eru leiðbeiningar um notkun hennar.
Einnig er hægt er að opna kortasjá reiðleiða í spjaldtölvum og snjallsímum.