Nú er senn góðri helgi að ljúka í sjálboðaliðastarfinu.

Á fimmtudag var haldin sjálfboðaliðafundur þar sem fóru fram léttar umræður um skipulag vinnunnar.

Föstudagsmorgun voru svo mættir fyrstu sjálboðaliðarnir og undir góðri stjórn Jóns Árna tóku þeir sperrurnar niður af vögnunum ásamt því að fúaverja það sem niður kom. Hilmar Páls mætti með kranabíl og stjórnaði honum af miklu öryggi. Húsasmiðjan lét okkur hafa fúavörn á kostnaðarverði og þökkum við fyrir það framtak. Á laugardag og sunnudag mættu um 15 manns og slógu hamarshöggin þétt og góð stemming var í hópnum. Festingar voru settar á allar sperrur, fúavarið og byrjað á samsetningu á grindinni. Hjördís okkar og Kalli og Írís á Óseyri sáu um að elda hádegismat ofan í hópinn og eiga lof skilið. Þau ákváðu einnig að kosta sjálf allt hráefni, takk fyrir okkur.

Það er ekki leiðinlegt að geta sagt frá því að eftir þriggja daga vinnu erum við komin einn dag á undan áætlun vegna dugnaðar sjálboðaliða helgarinnar.

Næstu helgi munum við svo reysa húsið og ef þig langar til að vera með ekki hika við að hringja í Árna Sigfús sem er tengiliðir sjálboðaliðanna í síma 823-6767 eða bara mæta á staðinn um næstu helgi.

Hér til vinstri á síðunni undir reiðhöll - verkplan mun svo birtast verkáætlun næstu vikna.

Fyrir hönd stjórnar vil ég þakka þeim kærlega sem lögðu hönd á plóg þessa helgina fyrir frábært starf og skemmtilegar stundir.

Þórdís Ólöf