Eftir tveggja daga vinnu nú um helgina þ.e.a.s. föstudag og laugardag eru allar sperrur á höllinni okkar komnar upp. Margir hafa lagt hönd á plóg og afköstin mikil.
Gaman er að sjá hversu mikinn áhuga þetta vekur og er mikið um að fólk líti við til að sjá það sem fram fer. Á morgun sunnudag verður einnig nóg að gera og næstu helgar og er öllum velkomið sem vilja koma að hjálpa til að mæta bara á staðinn eða heyra í honum Árna Sigfúsi en númerið hans er í fréttinni hér að neðan. Við sofum út á morgun og mætum klukkan níu.

