Opið íþróttamót Sleipnis fer fram helgina 10.-12.Mai, nk. Mótið er haldið á Brávöllum Selfossi.

Boðið verður uppá eftirfarandi greinar:

  • Opinn flokkur: Fjórgangur V1-Tölt T1-Tölt T4-Fimmgangur F1-Gæðingaskeið-100m skeið
  • 2.flokkur: Fjórgangur V2-Tölt T7
  • Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3-Fimmgangur F2-Gæðingaskeið
  • Unglingaflokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3-Fimmgangur
  • Barnaflokkur: Fjórgangur V2-Tölt T3

ATH að T4 er skráð sem T2 í skráningarkerfinu

Skráning er hafin á eftirfarandi vefslóð:http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Skráningu lýkur á miðnætti miðvikudag 8 mai.

Passa þarf að velja skráningu í efstu línu, svo mót í næstu línu, velja svo Sleipnir sem mótshaldara og fylla svo inní stjörnumerkta reiti. Neðst er hægt að velja um atburð og þá er valið Opið íþróttamót. Þá birtast, fyrir neðan, þær greinar sem í boði eru á mótinu. Keppandi velur sér grein og uppá hvora hönd skal riðið. Þegar keppandi hefur valið það sem við á og fyllt út alla stjörnumerkta reiti er pöntunin sett í körfu sem er hnappur neðst á síðunni. Hægt er að bæta við fleiri skráningum og setja í körfuna. Þegar keppandi er búinn að skrá þá er farið í vörukörfuna efst í hægra horninu og gengið frá greiðslu þar, hægt er að velja um kortagreiðslu eða millifærslu.
Ath að ef greitt er með millifærslu þá verður að setja pöntunarnúmer sem tilvísun og senda póst á: annasiv@simnet.is
Ef greiðsla hefur ekki borist þá er keppandi ekki skráður á mótið.

Upplýsingar sem þurfa að koma fram þar eru:
Skráningargjald er 3500 kr á grein fyrir fullorðna og 3000 kr fyrir börn unglinga og ungmenni.
Við viljum benda á að nú ætlum við að bjóða uppá Tölt T7 2 flokkur. þar sem sýnt verður: hægt tölt, snúið við, frjáls ferð á tölti.
Vakin er athygli á því að opinn flokkur er ætlaður keppnisvönum knöpum og 2.flokkur minna keppnisvönum.
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og  / eða fella niður greinar og flokka ef ekki næst nægileg þátttaka.
Með von um að sjá sem flesta.
Mótanefnd Sleipnis