Opið world ranking íþróttamót Sleipnis verður haldið að Brávöllum daganna 22 – 25 maí.
Miðað er við að mótið hefjist á fimmtudagskvöldi á skeiðgreinum. En með framkvæmd þeirra fer Skeiðfélagið og verða þetta því fyrstu skeiðleikar sumarsins. Skeiðfélaginu hefur borist mikill fengur því heiðurshjónin Guðmundur Árnason og Ragna Gunnarsdóttir eigendur hestavöruverslunarinnar Baldvins og Þorvaldar hafa slegist í lið með Skeiðfélaginu og ætla að styrkja þá um alla Skeiðleika sumarsins, glæsilegt framtak það og eiga þau heila þökk fyrir.
Eftirfarandi greinar eru í boði á WR mótinu
• Skeiðgreinar: 250 m skeið, 150 m skeið og 100 m (fljúgandi skeið), Gæðingaskeið 1.flokkur,ungmenna- og unglingaflokkur
• Meistaraflokkur : T1,V1,F1,T2
• 1.flokkur : T3,V2,F2,T4,
• 2.flokkur : V2 og T7
• Ungmennaflokkur : V2,F2,T3
• Unglingaflokkur : V2,F2,T3 og T7
• Barnaflokkur : V2,F2,T3 og T7
Skráning er hafin á vefslóðinni http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add . Skráningu lýkur mánudagskvöldið 19.maí klukkan 23:59
Passa þarf að velja skráningu í efstu línu, svo mót í næstu línu, velja svo Sleipnir sem mótshaldara og fylla svo inní stjörnumerkta reiti. Neðst er hægt að velja um atburð og þá er valið Opið íþróttamót. Þá birtast, fyrir neðan, þær greinar sem í boði eru á mótinu. Keppandi velur sér grein og uppá hvora hönd skal riðið. Þegar keppandi hefur valið það sem við á og fyllt út alla stjörnumerkta reiti er pöntunin sett í körfu sem er hnappur neðst á síðunni. Hægt er að bæta við fleiri skráningum og setja í körfuna. Þegar keppandi er búinn að skrá þá er farið í vörukörfuna efst í hægra horninu og gengið frá greiðslu þar, hægt er að velja um kortagreiðslu eða millifærslu.
Ath að ef greitt er með millifærslu þá verður að setja pöntunarnúmer sem tilvísun og senda póst á: skeidfelagid@gmail.com
Ef greiðsla hefur ekki borist þá er keppandi ekki skráður á mótið.
Upplýsingar sem þurfa að koma fram þar eru:
Skráningargjald er 4000 kr á grein fyrir fullorðna og 3000 kr fyrir börn unglinga og ungmenni.Í öllum skeiðgreinum að gæðingaskeiði frátöldu er gjaldið 2500 kr á grein.
Við viljum benda á að nú ætlum við að bjóða uppá Tölt T7 2 flokkur,unglinga og baraflokk. þar sem sýnt verður: hægt tölt, snúið við, frjáls ferð á tölti.
Vakin er athygli á því að 2.flokkur er ætlaður minna keppnisvönum knöpum. Og hvertur íþróttamótanefnd Sleipnis félagsmenn sína til þátttökur.
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og / eða fella niður greinar og flokka ef ekki næst nægileg þátttaka.
Með von um að sjá sem flesta.
Mótanefnd Sleipnis og Skeiðfélagsið