Gæðingakeppni og töltmót verður haldið á Brávöllum á Selfossi um Hvítasunnuhelgina 7.-9. júní næstkomandi. Gæðingakeppnin verður einnig úrtaka fyrir Sleipni, Ljúf og Háfeta og verður keppt í A flokki, B flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki. Einn keppandi verður inná velli í einu. Í úrtökunni verða farnar tvær umferðir og eiga keppendur þess kost að skrá sig í seinni umferð klukkutíma eftir að fyrri umferð líkur. Í töltkeppninni eru peningaverðlaun kr. 50.000. fyrir fyrsta sætið en þarna fer hver að verða síðastur að ná sér í stig til að taka þátt í tölti á Landsmóti.
Skráning er hafin á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=ad og lokar mánudaginn 2. Júní.


Drög að dagskrá:

  • Laugadagur 7. júní: Fyrri umferð í gæðingakeppni, yngri flokkum og forkeppni í tölti
  • Sunnudagur 8. júní: Seinni umferð í gæðingakeppni og yngri flokkum
  • Mánudagur 9. júní (annar í Hvítasunnu): Úrslit í öllum greinum
  • Dagskrá gæti breyst og verður birt endanleg að skráningu lokinni.
  • Mótanefnd Sleipnis
    Netpartar logo