Skráning er góð, mjög margir sterkir hestar og knapar eru skráðir til leiks og vonast mótshaldarar eftir fjölda áhorfenda. Vallaraðstæður eru hinar ákjósanlegustu þrátt fyrir lítilsháttar rigningar síðustu daga enda rennur yfirborðsvatn fljótt niður í hraunið undir Flóanum.
Mótshaldarar áskilja sér rétt til að gera lítilsháttar breytingar á dagskrá ef þarf en það verður þá birt á heimasíðu Sleipnis og helstu hestamiðlum.
Vonumst til að sjá sem flesta í sólinni á Suðurlandi um helgina.
Gæðinganefnd Sleipnis
Drög að dagskrá
Föstudagur 6. júní
Netpartatölt
18:00 Forkeppni í tölti
20:00 B úrslit í tölti
Laugardagur 7 júní
Forkeppni í öllum greinum
08:30 Ungmennaflokkur
10:00 Unglingaflokkur
11:00 Barnaflokkur
12:00 Matarhlé
13:00 B flokkur
15:30 Hlé
16:00 A flokkur
19:30 Hlé
20:30 A úrslit í Netpartatölti
Sunnudagur
Seinni umferð í öllum greinum.
Upphafstími og aðrar tímasetningar verða birtar á laugardag þegar skráningu í seinni umferð lýkur.
16:00 Úrslit í ungmennaflokki
16:30 Úrslit í unglingaflokki
17:00 Úrslit í barnaflokki
17:30 Úrslit í B flokki
18:00 Úrslit í A flokki