Reiðnámskeið Sleipnis sumarið 2018
Reiðnámskeið Sleipnis verða haldin í Þorleifskoti (Laugardælum) við Selfoss í sumar. Börnin læra undirstöðurnar í hestamennsku, stjórnun og ásetu. Námskeiðin henta öllum börnum og verður skipt í hópa eftir reynslu hvers og eins. Innifalið í verði er aðgangur að hesti, reiðtygjum og hjálmi. Að loknu námskeiði er foreldrasýning og fá öll börn viðurkenningarskjal með mynd af sér og sínum hesti.
Fyrir 6-8 ára – 5 daga námskeið kostar 12.000,-
- •25.–29. júni
- •9.-13. júlí
- •16.-20. júlí
- •13.-17. ágúst
Fyrir 9 ára og eldri – 10 daga námskeið kostar 24.000,-
- •11.-22. júní
- •9.-20. júlí
- •23. júlí-3. ágúst
- •7. -18. ágúst
Fyrir börn með mikla reynslu verður boðið upp á námskeið 25.-29. júní og 23.-27. júlí þar sem þau hafa möguleika á að koma með sína eigin hesta.
Umsjónarmenn eru Bjarni Sveinsson og Guðbjörg Matthíasdóttir (Gullý) en þau eru bæði menntaðir reiðkennarar frá Háskólanum á Hólum.
Skráning er hafin í síma 823-8636 (Gullý) eða reidskolisleipnis@gmail.com