Ungmennafélag Íslands heldur ungmennaráðstefnu sem ber yfirskriftina " Ungt fólk og lýðræði" á Hótel Örk Hveragerði dagana 22 - 24.sept nk.
Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16 - 25 ára. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 80 manns. Þátttaka tilkynnist fyrir þriðjudaginn 13.sept. nk. á netfangið alda@umfi.is . Nánari upplýsingar veitir Alda Pálsdóttir s. 863-2665.