Fréttir frá Stjórn

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands

Til sambandsaðila ÍSÍ

Reykjavik, 21. desember 2021

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra tekur gildi þann 23. desember og eftirfarandi eru helstu atriði er snerta íþróttahreyfinguna: 

  • Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 50 í 20 manns og telja börn með í þeim fjölda.
  • Nándarregla verður aftur 2 metrar nema á meðal gesta á sitjandi viðburðum, þar verður nándarregla 1 metri. Börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin nándarreglunni.
  • Grímuskylda gildir þar sem ekki er hægt að viðhafa 2 metra regluna en börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin grímuskyldu.
  • Íþróttaæfingar og keppnir barna og fullorðinna eru heimilar fyrir allt að 50 manns.
  • Sótthreinsa skal snertifleti og sameiginleg áhöld milli hópa og lofta skal vel út.
  • Allt að 200 manns geta verið í áhorfendastúkum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem m.a. fela í sér notkun hraðprófa.
  • Allt að 50 manns geta verið í hverju hólfi í áhorfendasvæðum þar sem hraðpróf eru ekki nýtt en þó að uppfylltum ákveðnum skilyrðum (sjá reglugerð).
  • Sundstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði geta tekið á móti allt að 50% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Börn telja ekki með í þeim fjölda.

Til upplýsingar:

Frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins.
Reglugerð heilbrigðisráðherra birt þann 21.desember.
Minnisblað sóttvarnalæknis frá 20. desember.

10 Jun, 2023

Skráning í Sleipni

hnappur skrafelagid

Sækja um WF

hnappur WFadgangur

Fréttabréf Sleipnis

hnappur frettabref

Persónuvernd

hnappur personuvernd

Skipulagsmál

Skipulagsmal

Félagsheimili

Hnappur Felagsheimili

Reiðhöll dagatal


Júní
29Jún Fim 7:00 - 22:00 Frátekin v. Íslandsmót 2023 
30Jún Fös 7:00 - 22:00 Frátekin v. Íslandsmót 2023 

Júlí
1Júl Lau 7:00 - 22:00 Frátekin v. Íslandsmót 2023 

Hliðskjálf dagatal


Júní
10Jún Lau 12:00 Frátekin v. húsnefnd 
16Jún Fös 12:00 Frátekin v. húsnefnd 
24Jún Lau 12:00 frátekið v húsnefnd 

Styrktaraðilar

Flettingar á síðu

Users
6
Articles
2299
Articles View Hits
8035142