Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars – 1. apríl næstkomandi.  

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði þetta árið. Fimmtudag og föstudag verður farið í   reiðtúra, borðuð kjötsúpa, horft á tískusýningu, hrossaræktarbú heimsótt og horft á flotta gæðinga á lokakvöldi Meistaradeildar í hestaíþróttum í Ölfushöll.

 Eins og í fyrra verður farin skrúðreið á laugardeginum 31. mars og að þessu sinni verður farinn hringur í miðbænum.  Í ráðhúsi Reykjavíkur verður eitthvað hestatengt í boði allan daginn, söngur, fræðsla og gaman.   Um kvöldið endum við svo á að horfa á flottustu töltara landsins á skautasvellinu í Laugardal: „Ístölt – þeir allra sterkustu“.

 Sunnudagurinn er tileinkaður æskunni.  Sýningin Æskan og hesturinn er fjölskylduhátíð í Reiðhöllinni í Víðidal sem öll hestamannafélögin á stórhöfuðborgarsvæðinu standa að. Haldnar verða tvær sýningar á sunnudeginum 1.apríl.  Sýning þessi hefur alltaf verið gríðarlega vinsæl og þar má sjá framtíðarknapa Íslands leika listir sínar með fákum sínum.

 Kynningarmyndband hestadaga má sjá hér og slóð inn á heimasíðu hestadaga er hér