Hestamenn athugið!

Vaktir hestamannafélaganna á Landsmóti 2012 eru með sama móti og áður.
Helstu störf á þeim vöktum eru eftirfarandi:

  • Hliðvarsla
  • Aðstoð við fótaskoðun
  • Innkomustjórnun
  • Upplýsingamiðstöð
  • Aðstoð á skrifstofu
  • Ýmis störf á svæði
  • Aukavaktir

Starfsmenn vaktana skulu hafa náð 18.ára aldri.

Starfsmenn hafa aðgang að mótinu á meðan á vöktum þeirra stendur en fá ekki almennan aðgöngumiða. Einnig má nefna að starfsmönnum er skaffaður matur á meðan á vakt stendur.

Þeir sem hafa áhuga á því að starfa á þessum vöktum eru beðnir um að hafa samband í gegnum netfangið landsmothugrun@gmail.com við fyrsta tækifæri og gildir þar reglan að fyrstur kemur fyrstur fær.

Mikilvægt er að senda:  Nafn, kennitölu, nafn hestamannafélags og símanúmer.
Mér til aðstoðar í ár verðu Ragna Rós Bjarkadóttir og munum við hafa samband í framhaldinu til þess að finna útúr því hvað hentar hverjum og hvernær.

Þessar vaktir tókust mjög vel á síðasta móti og vonumst við til að sunnlendingar standi sig jafn vel og norðlendingar gerðu á síðasta móti.
Koma svo!

Með vissu um góðar undirtektir,

Hugrún Ósk Ólafsdóttir

Mannauðsstjóri Landsmóts hestamanna