Æskulýðsnefnd Sleipnis verður með skráningar og startfund vegna Hestafjörs 2014 í Hliðskjálf fimmtudaginn 27. febrúar kl. 18.  Hópar verða myndaðir og þema og búningastarfi ýtt úr vör í hverjum hóp. Æfingar hefjast 6. mars í Sleipnishöllinni, nánar um það síðar, þjálfari Sleipnishópa er Hugrún Jóhannsdóttir.
Þeir sem komast ekki á fundinn geta skráð sig með pósti á netfangið rabbi@tjarnir.is með upplýsingum um nafn síma og kennitölu fyrir 5. mars.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Æskulýðsnefndin