Æskulýðsnefndin ætlar að hafa opið hús í félagsheimilinu Hliðskjálf á fimmtudaginn í næstu viku (9. mars) kl. 18:00-20:00. Við ætlum að hittast og spila saman og hafa gaman. Þar sem við ætlum að gera okkur glaðan dag má hver og einn koma með snakk /popp /ávexti eða eitthvað sambærilegt til að maula (EKKI NAMMI). Æskulýðsnefndin býður upp á drykki. Ef þið eigið einhver skemmtileg borðspil megið þið endilega koma með það/þau.

Bestu kveðjur og vonandi sjáumst við sem flest,
f.h. Æskulýðsnefndar
Hrönn

p.s. mömmur/pabbar/afar/ömmur eru einnig velkomin