Reykjavík, 11. febrúar 2022
Afléttingar á sóttvarnarreglum hafa verið boðaðar og tekur ný reglugerð gildi á miðnætti. Reglur um sóttkví verða þó afnumdar strax í dag.
Helstu reglur er varða íþróttahreyfinguna verða eftirfarandi:
- Fjöldatakmarkanir fara úr 50 í 200 manns innandyra. Fjöldatakmarkanir utandyra falla úr gildi.
- Á íþróttaæfingum og í keppnum hjá börnum og fullorðnum innandyra verður heimilt að hafa allt að 200 manns í rými.
- Sameiginleg áhöld skulu áfram sótthreinsuð milli hópa og mikilvægt að loftræsting sé í lagi.
- Almennt gildir 1 metra regla í samfélaginu og skylt að nota grímu þar sem ekki verður hægt að viðhafa 1 metra nálægðartakmörkun.
- Börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin nálægðartakmörkunum og börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin grímuskyldu.
- Heimilaður fjöldi á sitjandi viðburðum verður 1000 manns í hverju rými að því gefnu að allir séu sitjandi, ekki andspænis hver öðrum og að allir beri andlitsgrímu.
- Reglur um sóttkví og smitgát falla úr gildi. Fólk er ekki lengur skylt til að fara í sóttkví eða smitgát en þó eru aðilar hvattir til þess að viðhafa smitgát og fylgjast vel með einkennum hafi það verið í nánum samskiptum við smitaðan einstakling og fara í PCR sýnatöku ef einkenni fara að gera vart við sig.
- Heilsu- og líkamsræktarstöðvar, sundstaðir og skíðasvæði geta tekið á móti leyfilegum fjölda miðað við hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi.
Hér er hægt að sjá frétt á vef Stjórnarráðsins
Hér er hægt að sjá reglugerð um takmörkun á samkomum sem tekur gildi 12. febrúar
Hér er hægt að sjá minnisblað sóttvarnalæknis frá 9. febrúar