Sem kunnugt er sér HSK um framkvæmd 27. Landsmóts UMFÍ, sem haldið verður á Selfossi dagana 4. – 7. júlí í sumar.

Ósk um aðstoð  sjálfboðaliða til starfa á landsmótinu
Til þess að mótið verði að veruleika þurfum við á miklum fjölda sjálfboðaliða að halda. Því hvetjum við aðildarfélög og einstaklinga til að taka á með okkur og bjóða fram krafta sína til vinnu við mótið, hvort sem er við framkvæmd íþróttakeppninnar eða gæslu og þjónustu við keppendur og gesti. 

Skráning sjálfboðaliða er hafin á netfangið landsmotumfi@umfi.is og er stefnt að því að manna allar stöður fyrir 10. júní.

Hugsanlegum hagnaði mótsins deilt út til félaga sem senda sjálfboðaliða
Líkt og á Unglingalandsmótinu í fyrra verður 70% af hugsanlegum hagnaði landsmótsins úthlutað til þeirra félaga, deilda og ráða sem senda sjálfboðaliða til vinnu. Hagnaðarhlutdeild fer eftir fjölda vinnustunda hjá viðkomandi félagi/deild/ráði.
Í fyrra voru greiddar 782,50 kr. fyrir hverja vinnustund.

Keppnisisgreinar
Keppnisgreinarnarnar á mótinu verða: Badminton, blak, borðtennis, bridds, fimleikar, frjálsíþróttir, glíma, golf, handknattleikur, hestaíþróttir, íþróttir fatlaðra, júdó, knattspyrna, körfuknattleikur, skák, skotfimi, starfsíþróttir, sund, kraftlyftingar, motocross, taekwondo, dans, pútt, boccia og 10 km hlaup.
Tímasetningar keppnisgreina liggja að mestu fyrir og meðfylgjandi er tímarammi keppnisgreina fylgir hér með, þar má einnig sjá hvar þær fara fram. Sjá einnig www.landsmotumfi.is.

Frekari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu HSK í síma 482 1189.