Ungmennaráð UMFÍ hefur nú í þriðja skiptið ákveðið að breyta ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði.
Í stað þess að þetta verði þriggja daga viðburður þá mun ráðstefnan aðeins verða í einn góðan dag í ráðstefnu- og tónlistarhúsinu Hörpu. Ráðstefnan verður samkvæmt þessu fimmtudaginn 17. september á milli kl. 09:00 – 16:00 í Silfurbergi.
Við fylgjum að sjálfsögðu öllum sóttvarnarreglum og pössum vel upp á hvert okkar og aðra líka.
Hvað er Ungt fólk og lýðræði?
Yfirskrift ráðstefnunnar er: Lýðræðisleg áhrif - Hvar, hvenær og hvernig getur ungt fólk haft áhrif?
Ráðstefnan er samræðuvettvangur ungs fólks á aldrinum 16 - 25 ára. Markmið og tilgangur ráðstefnunnar er að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks í leik og starfi og gefa ungu fólki verkfæri og þjálfun til þess að auka áhrif í sínu nær samfélagi.
Dagskráin verður að sjálfsögðu með fjölbreyttu sniði. Kynningar, málstofur, samtal við ráðamenn og önnur skemmtilegheit sem Ungmennaráð UMFÍ skipuleggur.
UMFÍ hvetur sambandsaðila til þess að hvetja ungt fólk á sínu sambandssvæði til þátttöku. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og er vinnureglan, fyrstur kemur fyrstur fær.
Þátttökugjald er 5.900 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið í gjaldinu eru ráðstefnugögn og veitingar á Kolabrautinni, veitingastað Hörpunnar. UMFÍ styrkir 80% af ferðakostnaði. Skila þarf inn kvittunum til þess að fá styrk fyrir ferðakostnaði.
Athygli er vakin á því að viðburðurinn er með öllu vímuefnalaus og á það líka við um rafsígarettur.
Skráning á ráðstefnuna er til föstudagsins 11. september nk. Smelltu hér til þess að skrá.
Nánari upplýsingar er á www.umfi.is.