Málþing um íþróttadómaraÍ E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal miðvikudaginn 21. mars 2012 kl. 17.00-20.00.

ÍSÍ, KSÍ, HSÍ, KKÍ og BLÍ boða til málþings um íþróttadómara og þeirra mikilvægu störf í tengslum við íþróttirnar.  Fulltrúar sérsambandanna munu fjalla um stöðu mála og framtíðarhorfur.  Málþingið er öllum opið, endurgjaldslaust á meðan húsrúm leyfir.  Allir sem áhuga hafa á þessum málum eru hvattir til að mæta, fræðast um stöðuna og leggja jafnvel orð í belg um málefnið.

alt




  • Hvernig geta íþróttagreinar unnið betur saman í dómaramálum?
  • Hver er áhrifamáttur og ábyrgð þjálfara og fjölmiðla?
  • Hvernig fjölgum við dómurum og höldum þeim í starfi?
  • Yfrir hvaða eiginleikum þarf íþróttadómari að búa yfir?
  • Hvernig fjölgum við konum í dómarastétt?


Þessum spurningum verður reynt að svara á málþinginu, m.a. í vinnuhópum þar sem allir hafa möguleika á þátttöku.

Niðurstöður hópavinnunnar verða birtar eftir að hópavinnu lýkur.

Forystumenn þessa málaflokks hjá ofangreindum sérsamböndum verða í panel í lok málþingsins.

Skráning er í síma 514-4000 eða á linda@isi.is  Í boði verður kaffi og léttar veitingar.

Allar frekari uppl. gefur sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is


Dagskrá málþingsins

17.00  Ávarp/setning 

17.05  Sameiginlegir þættir  

17.15  Fulltrúar íþróttagreinanna – kynning

17.40  Skilgreining hópavinnu 

17.45  Hópavinna   

A)  Hvernig geta íþróttagreinar unnið betur saman í dómaramálum?

        B)  Hver er áhrifamáttur og ábyrgð

a) Þjálfara?

b) Fjölmiðla?

 C)  Hvernig fjölgum við dómurum og höldum þeim í starfi (hindrum brottfall)?

          D)  Yfir hvaða eiginleikum þarf íþróttadómari að búa yfir?

         E)  Hvernig fjölgum við konum í dómarastétt?

18.45  Kaffihlé

18.55  Niðurstöður hópavinnu

19.25  Fyrirspurnir og umræður – (Panell)

19.50  Samantekt 

20.00  Málþingslok