Frestur til að sækja um dómara til að fá mót skráð löglegt í SportFeng rennur út 1.apríl því þurfa mótshaldarar að hafa hraðar hendur ef ekki hefur verið sótt um dómara.  Mótshaldarar sem ekki sækja um fyrir þann tíma verða setja sig í samband við stjórn HÍDÍ til að fá úthlutað dómurum – netfang HÍDÍ er hididomarar@gmail.com 

Umsókn um dómara eyðublað má finna inn á heimasíðu LH: http://lhhestar.is/is/page/umsokn-um-domara/ 

Munið að mót telst ekki löglegt nema dómaranefnd LH og stjórn HÍDÍ úthluti dómurum á mótið og sótt hafi verið um dómara fyrir 1.apríl  !! Einkunnir á ólöglegu móti telst ekki til árangurs inn á lista fyrir tölt á landsmóti !

  • 15.aprílSíðasti dagur fyrir dómara að sækja um löglegu mótin sem komin eru inn á heimasíðu HÍDÍ undir tenglinum Dómsstörf í boði.
  • 1.maíStjórn HÍDÍ áætlar að úthlutun dómara á þessi mót verði lokið og dómarar látnir vita.

Dómarar – munið að ykkur ber að tilkynna forföll til dómaranefndar/stjórnar HÍDÍ sem sér síðan um að úthluta nýjum dómara.

Minnum dómara og mótshaldara á að fylgjast með fréttum og tilkynningum á heimasíðu HÍDÍ

www.hidi.is

Hægt að senda stjórninni tölvupóst á netfangið hididomarar@gmail.com.

Kveðja

Stjórn HÍDÍ