Vegna óhagstæðrar veðurspár höfum við ákveðið að fresta Stóðhestadegi Eiðfaxa um sólarhring. Hátíðin verður því sett sunnudaginn 29. apríl kl. 14.
Bæði ungir og ósýndir og aðrir þekktari stóðhestar vera kynntir og sýndir en dagurinn er hugsaður sem vettvangur til að kynna marga af bestu stóðhestum landsins fyrir áhugasömum ræktendum.
Meðal þeirra sem koma fram eru:
- Víðir og afkvæmi
- Þóroddur og afkvæmi
- Ómur frá Kvistum
- Ketill frá Kvistum
- Gjafar frá Hvoli
- Bliki-Annar frá Strönd
- Hringur frá Fossi
- Jarl frá Árbæjarhjáleigu
- Hljómur frá Túnsbergi
- Bragur frá Túnsbergi
- Muggur frá Hárlaugsstöðum
- Þröstur frá Hvammi
- Ómur frá Kirkjuferjuhjáleigu
- Ögri frá Kirkjuferjuhjáleigu
- Lómur frá Stuðlum
- Vaðall frá Akranesi
- Guðberg frá Skagaströnd
- Böðvar frá Tóftum
- Kiljan frá Steinnesi
- Stæll frá Neðra-Seli
- Kjarkur frá Melbakka
- Stjarni frá Skeiðháholti
- Kompás frá Skagaströnd
- Möller frá Blesastöðum
- Árvakur frá Auðsholtshjáleigu
- Freyr frá Hvoli
Auk sýninga stóðhestanna mun Þorvaldur Árni Þorvaldsson standa fyrir sýnikennslu í reiðhöll Sleipnis. Þá verða heiðursjarlinn Gári frá Auðsholtshjáleigu, stólpaskepnan Víðir frá Prestsbakka og vonarstjarnan Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsgarði til sýnis inn í reiðhöll félagsins og geta gestir og gangandi virt þessa glæsigripi fyrir sér.
Stóðhestadagurinn hefst kl. 14, sunnudaginn 29. apríl, og er aðgangur ókeypis!
Allir velkomnir á Brávelli!