Sunnudaginn 18 nóvember verður boðið upp á fræðsludag og námskeið um Knapamerkin auk þess sem prófdómurum verður boðið upp á að uppfæra dómararéttindi sín og nýjum að spreyta sig á að taka próf. Fyrri hluti námskeiðsins verður öllum opinn sem áhuga hafa á að fræðast um Knapamerkin eða ætla sér að bjóða upp á Knapamerkjanámskeið í vetur. Seinni hluti námskeiðsins er einungis hugsaður fyrir þá aðila (reiðkennara) sem hyggjast taka prófdómarapróf.

Ath. Þeir sem eru með prófdómararéttindi verða mæta á þetta námskeið og taka prófdómaraprófið til að viðhalda núverandi réttindum.

Skráningu í prófdómarahluta námskeiðsins lýkur föstudagskvöldið 9 nóvember.

Staðsetning – Fáksheimilið og Reiðhöllin í Víðidal

Dagsetning - 18 nóvember frá klukkan 10:30 til 18

Verð
Það er frítt á fyrri hluta námskeiðsins en verð fyrir þá sem mæta á prófdómaranámskeið er 20.000 krónur og innifalið í því er kaffi og snarl yfir daginn auk próftökugjalds.

Dagskrá
Klukkan: 10:30 – 10:45 Kynning Helga Thoroddsen
Klukkan: 10:45 – 11:15
Erindi: Arndís Brynjólfsdóttir, reiðkennari.
Reynslan af Knapamerkjunum í Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra.
Kaffihlé
Klukkan: 11:30 – 12:00
Erindi: Rósa Kristinsdóttir og Oddný Erlendsdóttir.
Fjalla um reynsluna af því að vera nemandi í Knapamerkjum. Báðar hafa lokið prófi á 5. Stigi Knapamerkjanna.
Klukkan: 12:00 – 12: 15 Fyrirspurnir og umræður

Þessi fyrri hluti námskeiðsins er öllum opinn sem áhuga hafa á að kynna sér Knapamerkin og leita upplýsinga um þau.

Matarhlé
Klukkan 13:00 – 13:30
Farið yfir helstu verkefni Knapamerkjanna þessa dagana og hvað er framundan.
Umræður
Klukkan 13: 40 - 15:30
Farið yfir helstu áhersluatriði í prófum og æfð prófdæming af myndböndum.
Kaffihlé
Klukkan 16:00 – 18:00
Prófdómarapróf

Þessi hluti námskeiðsins er opinn reiðkennurum sem hyggjast kenna Knapamerkjanámskeið og prófdómurum sem vilja uppfæra prófdómararéttindi sín. Dæmd verða 2 próf á hverju stigi Knapamerkjanna og prófgögnum skilað til prófdómara.