Ráðstefna Háskóla Íslands og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands um stöðu
íþrótta í íslensku samfélagi verður haldin miðvikudaginn 28. nóvember nk.
klukkan kl. 13.00-16.30. Ráðstefnan verður í Hátíðarsal Háskóla Íslands og
er þátttaka öllum að kostnaðarlausu.

Markmið með þessu samstarfsverkefni ÍSÍ og HÍ er að efla tengsl og
samstarf mismunandi fræðasviða Háskóla Íslands og Íþróttahreyfingarinnar.
Tilgangurinn er að vekja athygli á hvernig margþætti vísinda- kennslu og
nýsköpunarstarf Háskóli Íslands getur styrkt starfsemi og stöðu íþrótta í
íslensku samfélagi. 

Á ráðstefnunni verður tekið á mörgum málefnum sem oft eru í umræðunni og
margir hafa skoðanir á; Á að getuskipta börnum í íþróttum? Skiptir
félagslegt umhverfi í íþróttum máli? Eru íþróttir menning? Er afrekshugsun
þjálfuð í nægilegum mæli? Svör við þessum spurningum og mörgum öðrum
verður leitast við að svara miðvikudaginn 28. nóvember.

Þrátt fyrir að þátttakan sé öllum að kostnaðarlausu þá verður að skrá sig
á skraning@isi.is<mailto:skraning@isi.is> fyrir hádegi mánudaginn 26.
nóvember.  Fyrirlestrarnir á ráðstefnunni verða teknir upp, eftir
ráðstefnuna verður hægt að nálgast þá á heimasíðum ÍSÍ og HÍ.

Dagskrá:
13.00  Setning
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands

Almennt íþróttastarf
Á að banna getuskiptingu barna í hópíþróttum?
Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við Íþrótta,- tómstunda- og
þroskaþjálfadeild HÍ
Félagslegt umhverfi árangurs í íþróttum: Ný sóknarfæri?
Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur
Sjúk sál í slöppum líkama - Nokkrar menningarsögulegar hugrenningar um
úrkynjun og íþróttir
Dr. Benedikt Hjartarson, aðjúnkt í almennri bókmenntafræði og
menningarfræði við HÍ

Kaffihlé 14.15-14.30

Afreksíþróttir
Afreksíþróttir hagkvæmar!
Dr. Daði Kristófersson, dósent við Hagfræðideild HÍ

Svo bregðast krossbönd
Dr. Kristín Briem, dósent. námsbraut í sjúkraþjálfun við
Heilbrigðisvísindasvið, HÍ
"Ég ætla að breyta íþróttinni minni" - þjálfun afrekshugarfars -
Sigurður Ragnar Eyjólfsson M.Sc. í íþróttasálfræði og A-landsliðsþjálfari
kvenna í knattspyrnu
Ytra umhverfi íþróttahreyfingarinnar
Ólafur Rafnsson forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands
Ráðstefnustjórar eru Erlingur Jóhannsson prófessor við HÍ, Ólafur
Eiríksson sundmaður og hæstaréttarlögmaður, Sunna Gestdóttir, frjálsar
íþróttir og doktorsnemi við HÍ og Hjördís Guðmundsdóttir verkefnisstjóri
hjá ÍSÍ.

 

kveðja

Hjördís Guðmundsdóttir

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands

Gym 1

Gym2