Æskulýðsmál
Nýjum myndum hefur verið bætt inn frá Páskamóti Sleipnis 4.apríl sl. sem og Fjölskyldudegi Sleipnis frá því í dag, þar sem foreldrar spreyttu sig á að ríða sýningar krakkanna frá því í Hestafjörinu.
Eru í möppunni - Félagsstarf 2012 - , sjá nánar myndir frá Fjölskyldudegi hér og frá Páskamótinu 04.apríl hér
Einnig eru komnar myndir frá Firmakeppninni sjá hér
Vefstjórn
Hestafjör 2012 fór fram í reiðhöll Sleipnis nú á sunnudaginn. Hátíðin fór fram í blíðskaparveðri og heppnaðist geysivel í alla staði. Þátttakendur voru yfir 100 talsins og er flest var í höllinni voru þar vel á fjórða hundrað manns.
Að baki liggur gríðarmikið og óeigingjarnt starf, vill Æskulýðsnefnd Sleipnis færa öllum þátttakendum og öðrum þeim sem að verkefninu komu þakkir fyrir ómetanlegan stuðning.