Æskulýðsmál
Æskulýðsnefnd Sleipnis heldur kynningar – skráningarfund í félagsheimilinu Hliðskjálf Sunnudaginn 23. janúar nk. kl. 16.00.
Kynnt verður dagskrá Æskulýðsnefndar á komandi tímabili og þau námskeið sem í boði verða í vetur og fram á vor.
Skráning fer fram hjá aðildarfélögum LH. Síðasti skráningardagur er 29. Júlí.
Skráningar hjá Sleipnisfélögum skulu berast á netfangið: rabbih@isholf.is
Skráningargjald er 4.000 krónur og greiðist inn á reikning : 0152-26-100774 kt:590583-0309. Senda verður staðfestingu greiðslu á netföngin: thytur1@gmail.com og thorbjorn@sudur.is.
Ath. að skráning er ekki tekin gild nema greiðsla hafi borist.
Við skráningu þarf að koma fram nafn keppanda og í hvaða greinum er keppt. Gefa þarf upp IS númer hests og GSM síma þess er skráir. Hestar þurfa að vera grunnskráðir i World Feng.
Keppnisgreinar á mótinu eru:
Töltkeppni barna-, unglinga- og ungmennaflokkur - Fjórgangur barna-, unglinga- og ungmennaflokkur - Fimmgangur unglinga- og ungmennaflokkur - Gæðingaskeið unglinga- og ungmennaflokkur - Skeið 100m (flugskeið) - Fimikeppni A barna- og unglingaflokkur - Fimikeppni A2 ungmennaflokkur - Töltkeppni T2
Formaður mótanefndar er Sigrún Þórðardóttir s. 660-5826 og veitir hún allar nánari upplýsingar.
Umsjónarmaður keppnishrossa er Steinbjörn Tryggvason s. 893-5070
Tjaldsvæðið í Kirkjuhvammi verður með tilboð fyrir mótsgesti Íslandsmóts. Verð 3.000 per mann vikupassi eða 1.500 per mann helgarpassi. Útilegukortið gildir ekki þessa viku. Nánari upplýsingar hjá Erlu í síma 899-0008