Æskulýðsmál
FEIF og LH auglýsa eftir þátttakendum á þriðja leiðtoganámskeið FEIF fyrir ungt fólk á aldrinum 18-26 ára. Námskeiðið veður haldið 9-11. nóvember í TM-reiðhöllinni í Reykjavík og húsakynnum Eldhesta við Hveragerði.
FEIF vill hvetja ungt fólk áfram því þau eru leiðtogar framtíðarinnar. Með það að leiðarljósi hefur æskulýðsnefnd FEIF sett saman röð námskeiða þar sem kenndar eru leiðir til að efla leiðtogahæfni i samskiptum við bæði hesta og menn.
Næstkomandi mánudag, 14. maí, ætlar Æskulýðsnefndin að setja upp þrautabraut í Reiðhöllinni og er börnum og unglingum frjálst að koma með hestinn sinn hvenær sem er á bilinu 18:00-19:30 og leika sér í brautinni undir stjórn nefndarmeðlima.Næstkomandi mánudag, 14. maí, ætlar Æskulýðsnefndin að setja upp þrautabraut í Reiðhöllinni og er börnum og unglingum frjálst að koma með hestinn sinn hvenær sem er á bilinu 18:00-19:30 og leika sér í brautinni undir stjórn nefndarmeðlima.
Hlökkum til að sjá ykkur