Æskulýðsmál
Kæru foreldrar/forráðamenn.
Nú erum við að opna fyrir skráningu á Hestafjörsæfingar. Hestafjörsdagurinn 2018 verður að þessu sinni haldinn laugardaginn 28. apríl og hefst dagskráin kl. 10:30. Æfingar verða á mánudögum og þriðjudögum (16. og 17. apríl og 23. og 24. apríl ). Hugsanlega verður einni æfingu bætt við auk Generalprufu sem verður föstudaginn 27. apríl. Æfingatímar verða seinnipart dags. Kennari verður Áslaug Fjóla Guðmundsdóttir.
Hestafjörsæfingarnar eru ókeypis fyrir þátttakendur, hestamannafélagið greiðir reiðkennaranum.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendið tölvupóst fyrir 13. apríl til Æskulýðsnefndar (hronnbjarna@hotmail.com) með eftirfarandi upplýsingum: Nafn þátttakanda og fæðingarár,nafn, gsm sími og netfang forráðamanns,nafn, litur og aldur hests
Á Hestafjörinu er einnig einnhópur fyrir yngri börn sem ekki ríða sjálf ( foreldrar / forráðamenn teyma undir þeim ) en gott er að fá einnig tölvupóst frá þeim með ofangreindum upplýsingum þó svo að þau séu ekki að mæta á "æfingar".
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 867-9304 eða netfanginu hér að ofan.
Vonandi sjáum við sem flesta í "Hestafjörinu",
Æskulýðsnefnd
Uppskeruhátíð æskulýðsnefndar verður haldin miðvikudaginn 25. október nk. kl. 19:00 í félagsheimilinu Hliðskjálf. Þar ætlum við að hittast, veita viðurkenningar fyrir námskeið liðins vetrar, spá í starf næsta vetrar og eiga skemmtilega kvöldstund saman.
Á eftir fáum við okkur svo pizzur........
Hlökkum til að sjá ykkur,
Æskulýðsnefnd Sleipnis