Fréttir frá Stjórn
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Til sambandsaðila ÍSÍ
Reykjavik, 21. desember 2021
Ný reglugerð heilbrigðisráðherra tekur gildi þann 23. desember og eftirfarandi eru helstu atriði er snerta íþróttahreyfinguna:
- Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 50 í 20 manns og telja börn með í þeim fjölda.
- Nándarregla verður aftur 2 metrar nema á meðal gesta á sitjandi viðburðum, þar verður nándarregla 1 metri. Börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin nándarreglunni.
- Grímuskylda gildir þar sem ekki er hægt að viðhafa 2 metra regluna en börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin grímuskyldu.
- Íþróttaæfingar og keppnir barna og fullorðinna eru heimilar fyrir allt að 50 manns.
- Sótthreinsa skal snertifleti og sameiginleg áhöld milli hópa og lofta skal vel út.
- Allt að 200 manns geta verið í áhorfendastúkum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem m.a. fela í sér notkun hraðprófa.
- Allt að 50 manns geta verið í hverju hólfi í áhorfendasvæðum þar sem hraðpróf eru ekki nýtt en þó að uppfylltum ákveðnum skilyrðum (sjá reglugerð).
- Sundstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði geta tekið á móti allt að 50% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Börn telja ekki með í þeim fjölda.
Til upplýsingar:
Frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins.
Reglugerð heilbrigðisráðherra birt þann 21.desember.
Minnisblað sóttvarnalæknis frá 20. desember.
Vegna sóttvarna verður stefnumótunar-fundinum sem átti að halda 23. nóvember, frestað þar til fleiri en 50 mega koma saman aftur.
Formenn nefnda munu funda með stjórn 30. nóvember til að fara yfir málin og móta dagskrá næsta árs.
Skipulagsmálin eru að komast á skrið og verður auglýst eftir aðila til að vinna ramma og deiliskipulag fyrir svæðið okkar með skipulagsnefnd Sleipnis. Skipulagsnefnd hefur sent skipulags og bygginganefnd Árborgar, athugasemd vegna breytingar á deiliskipulagi til að bæta við innkeyrslu að lóð Húsasmiðju við Larsenstræti frá Gaulverjabæjarvegi.
Auglýst var eftir tilboðum í að ljúka við klæðningu á félagsheimili og barst eitt tilboð sem var tekið og hefst sú vinna nú í desember að öllu óbreyttu.
Reiðhallar gólfið hefur verið lagað reglulega þar sem vökvunarstútar leka og þurfum við að láta vita í netfangið sleipnir@sleipnir.is ef stútar leka.
Þegar gólfið verður of blautt á kafla höfum við verið að moka blautu efni yfir á þurr svæði og þurru efni í staðinn, við getum öll hjálpast að við þetta verkefni meðan félagið hefur ekki starfsmann.
Vökvunarstútar sem stíflast eða fara að leka eru lagfærðir þegar tæki til að lyfta fólki í rétta hæð eru til staðar, sjálfboðaliðar eru alltaf velkomnir, látið vita í netfangið sleipnir@sleipnir.is ef þið viljið aðstoða í reiðhöllinni.
Nýlega var fundað með Vegagerðinni vegna frágangs eftir breikkun og lagfæringar á Gaulverjabæjarvegi. Vegagerðin mun fara yfir málið með verktaka, bæði lagfæringar á tengingu reiðvegar eftir hækkun á heimreið Dísastaða og ástand reiðvegar eftir framkvæmdirnar. Vegagerðin skoðar einnig leiðir til að bæta öryggi þar sem reiðvegurinn sveigir að akvegi rétt áður en komið er að fyrrnefndri heimreið.
Fyrirhugað er að funda sérstaklega vegna vegtengingar Suðurhólavegs inn á Gaulverjabæjarveg og möguleika á tilfærslu reiðvegar meðfram Gaulverjabæjarvegi þannig að lágmarks fjarlægð frá akvegi náist.
Vegna fyrirspurna um félagslit Sleipnis:
Tilboð óskast í utanhússklæðningu á Hliðskjálf. Að skipta út timburklæðningu á norðurgafli, austurhlið og kring um aðalinngang á vesturhlið. Klæða með bárujárni og með blikki kring um glugga og hurðir. Förgun, flutningur á gömlu klæðningunni á gámasvæði Árborgar. Hér er eingöngu verið að tala um vinnulið ofangreinds verkefnis. Verkið þarf að hefjast hið fyrsta og vera lokið í síðasta lagi um miðjan nóvember. Áhugasamir hafi samband við ritara stjórnar í síma 897-1299.
Stjórnin
Ný fræðslunefnd Sleipnis hefur tekið til starfa og eru nýir nefndamenn boðnir velkomnir í hópinn, Fræðslunefnd Sleipnis 2021.
Jafnframt er fráfarandi nefndafólki þakkað gott og öflugt starf á liðnum árum.
Stjórnin