• Forsíða
    • Viðburðir og skemmtanir
    • Fréttir frá Stjórn
    • Æskulýðsmál
    • Reiðleiðir á suðurlandi
    • Gerast félagi í Sleipni
    • Fréttabréf Sleipnis
    • Viðbragðsáætlun íþróttahreyfingarinnar
  • Dagskrá
  • Stjórn / Nefndir
    • Stjórn og nefndir 2025
    • Stjórn og nefndir 2024
    • Stjórn og nefndir 2023
    • Stjórn og nefndir 2022
    • Stjórn og nefndir 2021
    • Stjórn og nefndir 2020
    • Stjórn og nefndir 2019
    • Stjórn og nefndir 2018
    • Stjórn og nefndir 2017
    • Stjórn og nefndir 2016
    • Stjórn og nefndir 2015
    • Stjórn og nefndir 2014
    • Stjórn og nefndir 2013
    • Stjórn og nefndir 2012
    • Stjórn og nefndir 2011
  • Saga Sleipnis
    • Merkisgripir Sleipnis
      • Sleipnisskjöldur
      • Klárhestaskjöldur
      • Ræðupúlt
      • Fundahamar
    • Myndaalbúm af eldri vefsíðu
    • Skjöl-Fundagerðir
    • Sleipnir 75 ára - VideoSleipnir 75 ára - Video
    • Hestaferð í tilefni 100 ára vígslu Ölfusárbrúar
    • Lög Sleipnis
    • Sleipnislagið
    • Hesthúshornið
    • Formenn Sleipnis
    • Heiðursfélagar
    • Bikarar
    • Félagsmenn
      • Félagatal Sleipnis 2025
  • Reiðhöll-Hliðskjálf-Vellir
    • Dagatal Reiðhallar
    • Dagatal félagsheimilis
    • Dagatal Keppnisvalla
    • Aðgangur og gjaldskrár
    • Félagsheimilið Hliðskjálf
    • Viðrunarhólf

Næst á dagskrá félagsins

26 Jun
Íslandsmót ungmenna og fullorðinna 2025
Date 26.06.2025 00:00 - 29.06.2025 20:00
18 Aug
Kynbótasýningar á Brávöllum
18.08.2025 00:00 - 23.08.2025 23:59

ATH að dagsetningar geta tekið breytingum er nær dregur

Reiðhöll - bókanir

3 Jun
Frátekin v. Fræðslunefnd
03.06.2025 16:45 - 22:00

Fræðslunefnd co. Þ.Sig

7 Jun
Gæðingamót Sleipnis 7-9 júní
07.06.2025 - 09.06.2025

 Gæðingamót Sleipnis 7-9 júní, höllin er lokuð meðan mótið varir.

Vallasvæði - bókanir

7 Jun
Gæðingamót Sleipnis 2025 6-9 júní
07.06.2025 - 09.06.2025

 Gæðingamót 7-9 júní- vellir og keppnisbrautir lokaðar þá daga sem mótið varir.

11 Aug
Keppnisvellir lokaðir v. Kynbótasýninga
11.08.2025 07:00 - 15.08.2025 23:30

Brautir og hringvellir lokaðir meðan þá daga sem kynbótasýningar standa yfir

Fréttir frá Stjórn

Vorsýning á Selfossi

IS2004187660 Gandálfur frá Selfossi kominn inná LM 2011
Einstaklingssýndir stóðhestar 7 vetra og eldri

Read more: Vorsýning á Selfossi

Alþjóðlega NJF-ráðstefnan

Alþjóðlega NJF-ráðstefnan ”Housing and management of horses in Nordic and Baltic climate” verður haldin á Hótel Loftleiðum dagana 6. og 7. júní nk.

Markmið ráðstefnunnar er að draga saman nýjustu rannsóknarniðurstöður og leiðbeiningar varðandi meðferð hrossa, bæði innan sem utanhúss, með sérstaka áherslu á nærumhverfi bæði hrossa og manna.

Fagsvið ráðstefnunnar verða fjölbreytt og spanna vítt svið eins og sjá má við lestur dagskrár hennar:

Read more: Alþjóðlega NJF-ráðstefnan

Bara Gras ?

Samstarfsverkefni 22 hreyfinga og samtaka á Íslandi 4. apríl nk.

Read more: Bara Gras ?

Minnum á aðalfundinn í kvöld

Aðalfundur 2011

Hestamannafélagið Sleipnir boðar til aðalfundar félagsins þann,

10. Janúar 2011 kl. 20:00

í Hliðskjálf Selfossi

Dagskrá fundar;

Venjuleg aðalfundarstörf

Skýrslur nefnda, afhending bikara, tillögur bornar fram, kosningar og önnur mál

Gestir frá Rangárbökkum ehf og Rangárhöllinni ehf munu koma og kynna sýna framtíðarsýn.

Saga Sleipnis

Stiklur úr sögu Hestamannafélagsins Sleipnis

Hestamannafélagið Sleipnir var stofnað sunndaginn 9. júní árið 1929 að Skeggjastöðum í samkomuhúsi Hraungerðishrepps eftir uppástungu nokkurra manna í Hraungerðis- og Villingaholtshreppi. Á fundinn voru mættir 14 menn og allt síðan þá hefur félagið verið virkt. Félagið hefur staðið fyrir umfangsmikilli starfsemi af ýmsum toga. Fyrstu kappreiðar félagsins voru haldnar á Villingaholtsholti, 4. ágúst 1929, kl. 3. e.h. Þar voru reyndir 27 hestar. Aðalfundur var haldinn 21. desember sama ár. Á þeim fundi var ákveðið að gera kappreiðarvöll á Hestaþingsflöt í Hróarsholtslandi. Fyrri kappreiðar sumarsins 1930 voru haldnar á Villingaholti þann 1. júní, en 27. júlí var völlurinn á Hestaþingsflöt vígður og haldnar kappreiðar. Starf Sleipnis var nú komið í fast form, síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið.

Sleipnir gerðist aðili að Landssambandi hestamannafélaga árið 1950. Árið 1950 kom fyrst fram hugmyndin um Sleipnisskjöldinn sem verðlaun fyrir gæðingakeppni. Ríkarður Jónsson var fenginn til að skera út skjöld úr tré, og var útskorin hestsmynd á honum. Vinnst hann aldrei til eignar en hefur verið veittur árlega síðan í gæðingakeppni. Reiðvegi bar fyrst á góma árið 1952 og komst sá fyrsti í gagnið 1954, er ruddur var "vegaspotti með jarðýtu yfir kafla í landi Selfossbæja í áttina til Kaldaðarnesflata". "Skrautreiðin" á sér upphaf hjá Sleipni en kringum 1950 voru hestamenn í Sleipni farnir að sýna hópreið á hestum sínum við ýmis tækifæri. Von bráðar voru svo Sleipnisfélagar búnir að fá sér samlita búninga, sem samanstendur af bláum jakka og hvítum buxum. Árið 1964 áttu unnu Sleipnismenn sér það til frægðar að eiga fegursta hópinn í hópreið hestamanna að Skógarhólum á Þingvöllum. Árið 1963 hófst samstarf við Smára um hestaþing að Sandlækjarholti og síðan frá árinu 1968 að Murneyri. 15. maí 1971 hófst firmakeppni. 49 fyrirtæki tóku þátt í keppninni þetta fyrsta ár. Stofnun íþróttanefndar var annað mikið mál sem kom fram á aðalfundi vorið 1976. Íþróttadeild var stofnuð árið 1978, en við inngöngu L.H. í Í.S.Í., var deildin að fullu sameinuð Sleipni árið 1998 og heldur m.a. árlegt meistaramót Sleipnis í hestaíþróttum.

Starfsemi félagsins er af ýmsum toga, baðtúr til strandar, grilltúr, þorrareið og þorrablót, kaffitúrar í nærsveitir, firmakeppni, vetrarmót, vormót í hestaíþróttum auk þátttöku í fjórðungs- og landsmótum. Reglulega eru haldnir fræðslu- og skemmtifundir, námskeiðahald, einnig má nefnda rekstur reiðskóla í samvinnu við íþrótta- og tómstundaráð Árborgar.

Sleipnir er aðili að Rangárbökkum sf., ásamt félögum í Árnes-, Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslum. Aðalfundur er æðsta stofnun félagsins.

Unnið úr Afmælisriti Sleipnis 50 ára árið 1979; Sleipnir, 50 ára starfssaga, eftir Pál Lýðsson og úr Afmælisriti Sleipnis 70 ára árið 1999; Árvarp formanns, Sverris Ágústssonar.

Page 17 of 17

  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
  • 15
  • 16
  • 17

Skráning í Sleipni

hnappur skrafelagid

Sækja um WF

hnappur WFadgangur

Fréttabréf Sleipnis

hnappur frettabref

Hestaferð 2025

Skrá í sumarferð Sleipnis

Félagsheimili

Hnappur Felagsheimili